Saga af Kát Siggason

Jæjja páskahelgin var róleg en góð. Hér hefur verið snjór og slydda alla daga en í dag skaust hitinn upp í 3 stig og snjórinn hvarf en skömmu síðar var komið frost og snjókoma.. Trén eru samt að bruma alveg í gríð og erg svo vorið hlýtur að koma í næstu viku..

Ég fékk bréf frá Jóni Bónda í Ölvisholti sem er að passa hann Kát fyrir okkur.. Kátur er alveg snillingur í að koma sér í hinar undarlegustu aðstæður enda er hann svolítill heigull en hann óttast ketti óskaplega mikið. Á bænum er köttur sem heitir Brandur og hann ræður ríkjum í gróðurhúsinu en Kátur í þvottahúsinu.. Einn daginn hafði Brandur komið sér fyrir í þvottahúsinu í því sem Kátur kemur hlaupandi inn í hádegismat og fer að bryðja hundakexið sitt.. Brandur fer að þefa af afturendanum á honum af miklum áhuga en Kátur tekur ekki eftir neinu.  Jón Bóndi fylgist með spenntur hvað muni gerast... Loksins tekur Kátur eftir Brandi sem situr makindalega fyrir aftan hann og Kátur frýs alveg... Eina hljóðið sem heyrist er þegar hundamaturinn dettur út um munninn á Káti...... Ég sé alveg svipinn á Káti, frosnum af hræðslu við köttinn.. Greyið hann verður svo aumingjalegur.. Loksins sprakk Jón bóndi úr hlátri og rak köttinn út úr þvottahúsinu svo Kátur gæti haldið áfram að borða... Æi litla krúttið.. hann er svo mikil skræfa..  Jón lýsti þessu svo stórkostlega að ég ætlaði aldrei að hætta að hlægja enda sé ég alveg svipinn á Káti fyrir mér...

Ritgerðin gengur vel en ég er komin í 8 bls en nú fer ég að verða hrædd við tímann.. tikk, tikk, tikk.. ég á að skila þessu á fimmtudaginn..

Í dag var spurningakeppni Fjölmiðlanna, úrslitalotan. Stöð 2 vann snilldarlega enda hafði Oddur greinilega lagt á sig að læra allt lotukerfið utan að sem reddaði mörgum stigum.. En þau stóðu sig vel og það var frábært að hlusta á þetta. Sumar spurningarnar svolítið miserfiðar og undarlegar en jæjja þetta er til gamans gert.. En ég var hundfúl að fá ekki fleiri grasafræðispurningar.. Ævar Örn er alltaf með þessa fugla aftur á bak og áfram.. bí bí bí bí....  Ég ákvað að taka til í eldhúsinu og setja hátalara á tölvuna og hlusta en keppnin var ekki nærri búin þegar ég var búin að vaska upp svo ég bakaði bara köku á meðan.. Hver á að borða hana veit ég ekki..

Vaggi og Lilja eru í heimsókn núna, snilld að fá félagsskap. Lilja er að byrja í skólanum á morgun en þau voru að koma úr skíðaferð til Ítalíu.. Næs.. Ég eldaði pizzu handa þeim en ég held þau torgi ekki kökunni líka.. þau eru á meltunni fyrir framan sjónvarpið núna...

Annars er búið að vera óttalega næs að vera ein yfir páskana.. ég er alveg komin með rútinu að vakna frekar snemma og læra og fara svo út að ganga/hlaupa síðdegis.  Það var reyndar nánast slagveður áðan þegar ég fór út í garðinn en ég hafði það af að hlaupa og labba 4 hringi (5 km).. Snilld.. Ég finn alltaf minna og minna til í sköflunginum eftir að ég byrjaði að nota legghlífar.

Valdi og Benni eru bara að hamast í grisjuninni, þetta gengur hægt og hratt til skiptis, aðallega hægt. Ég talaði við Valda áðan og þá voru þeir að kokka sér hamborgara.. Í gær tóku þeir stuttan dag og horfðu á einhverja fótobltaleiki en Liverpool gekk illa skilst mér og var það mikil sorg..

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband