22.3.2008 | 20:26
Frost og snjókoma..
Í gærkvöldi þá ákvað digital sjónvarpið allt í einu að vera með í tilverunni og það small í gang akkúrat þegar Midsummer murder var að byrja en ég elska þá þætti svo það varð lítið úr ritgerðarvinnu í gærkvöldi en þátturinn var alveg fantagóður..
Ég var svo mætt niður í Sopstationen klukkan tíu í morgun en ég ætlaði að vera á undan umferðinni og kíkja aðeins á varninginn.. En viti menn það var lokað þarna, frekar spælandi.. Ég hélt þá upp í Burlov center og var nú aðallega bara að dóla mér. Ég skoðaði í stóra búsáhaldabúð sem heitir Cervera og þar fann ég fallegustu grillhnífapör sem ég hef séð... En 12 hnífar og 12 gafflar kostuðu heilar 38.000 íslenskar krónur... Dó.... Ég held ég notist bara áfram við hnífapörin sem ég keypti í Essó skálanum sl. sumar.. fyir 1200 kr.. Hins vegar fann ég hnífasett á viðráðanlegu verði en ég bíð eftir Valda til að skoða það nánar. Ég fór síðan í H&M og verslaði tvær blússur og eina kápu og eitt pils en þaðan fór ég í Zizzí og keypti léttan sumarjakka... Ég veit ekki alveg hvort ég er að versla af leiðindum einum saman eða hvort mig vantar þetta.. Jú jú.. ég er alltaf fatalaus..
Þega heim kom þá lagðist ég í ritgerðarsmíði en þetta gengur hægt hjá mér. Ég er komin í 2 bls en efnið er mun flóknara en ég hélt. Svo var þvottatími og ég ætlaði út að labba meðan þvottavélin væri að klára sig en það er frost, rok og snjókoma svo ég bara hætti við.. Það var of hráslagalegt veður og ég hélt ég yrði úti á leiðinni í þvottahúsið..
Valdi og Benni eru búnir að vera duglegir en verkið gengur samt mjög hægt. Þetta er mun meiri keðjusagavinna heldur en kjarrsagavinna og tekur mun meiri tíma og orku.. Annars held ég að þeir hafi það bara fínt félagarnir heima hjá Sidda í Borgarnesinu. Þegar ég talaði við Valda áðan þá voru þeir að panta pizzu... Á morgun ætla þeir að hafa stuttan dag í vinnu og horfa á einhverja fótboltaleiki í sjónvarpinu... Ok.. það er páskasunnudagur...
Páskarnir verða bara rólegir hjá mér og ég geri bara ráð fyrir upphituðum pizzum í páskamatinn.. Ég ætla að vera dugleg að skrifa ritgerðina og fara svo út að labba.. Þó mér leiðist án Valda og sakni hans þá er nú lúmskt næs að vera svona einn, aleinn í tilverunni og slaka vel á... En það er hálfur mánuður í að Valdi komi til baka..
Páskakveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hey! flott myndin af ykkur við Álfhólinn
eigið sem flestar og bestar stundir þar. like I did.
Brjánn Guðjónsson, 22.3.2008 kl. 20:41
Hæ Brjánn..
Takk fyrir kveðjuna... Veit ekki hvort þú sérð þetta svar en.. Ó já.. okkur leið sko vel í Álfhólnum og við getum ekki beðið eftir að komast þangað aftur sem verður nákvæmlega 11. júní milli 1 og 2 eftir hádegið.. Það er búið að panta smiði til að taka þakið í gegn og glugga svo að Höllin á Hólnum verður bara enn betri.... PS.. myndin var tekin áður en við fengum húsið afhent.. við læddumst þarna vitandi að enginn væri í húsinu og pósuðum fyrir jólakortin...
Bestu kveðjur í Borgarfjörðinn
Guðrún og Valdi (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 20:59
Gleðilega páska
Heyrumst
kveðja frá Noregi
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 11:22
Blessuð Guðrún og takk fyrir frábæra helgi. Fínar myndir, sérstaklega af margarítunum! Við vorum í bústaðnum við Apavatn yfir helgina í góðu yfirlæti. Gangi þér vel með ritgerðina. Páskakveðja, Þórunn
Þórunn (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 17:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.