21.3.2008 | 16:41
Róóóóóóóólegheit...
Ó það er svo rólegt hjá mér þessa dagana... Svooooooooooo rólegt..
Að vissu marki er það ágætt en í raun verður þetta svona í þrjár vikur.... Það eina sem brýtur það upp er vettvangsferð eftir viku í mosafræðinni.... Það sem heldur í mér lífinu núna er að ég er nettengd og 7,9,13 verð það vonandi áfram... Ég kláraði að yfirfara vistfræðiverkefnin í gærkvöldi.. Hélt ég yrði búin fyrir kvöldmat en svo þegar ég kláraði þá var klukkan 22.00 svo það var síðbúinn kvöldverður hjá mér í gær... Nú er ég því byrjuð að grúska í ritgerðinni og það er komið eitt orð á blað: INNGANGUR.... Það er ágætis byrjun er það ekki....?
Rakel og Bolli komu í heimsókn og skiluðu af sér fjallagrasavíninu sem Bolli keypti handa mér í Fríhöfninni en þar sem fyrirlesturinn minn og lokaverkefni í mosa og fléttufræðinni endaði sem skemmtiatriði á kvöldvökunni í vettvangsferðinni þá ákvað ég að reyna að poppa þetta aðeins upp og bjóða upp á fjallagrasavínið helst undir kaflanum um íslensku fjallagrösin, Cetraria Islandica... Það getur ekki klikkað að múta kennurum og nemendum með áfengi er það..? hehe..
Það var gaman að hitta Bolla og Rakel en þau halda af landi brott á sunnudaginn for gúdd...
Í dag og í gær þá hef ég hlustað á spurningakeppni fjölmiðlanna á Rás 2 sem hann Ævar Örn er með... þetta er hin mesta skemtun fyrir mig þar sem ég þekki nú enn slatta af liði í þessum bransa.. En mér til mikillar ánægju þá bauð Ævar Örn upp á grasafræðispurningar og ég vissi svarið við öllum nema þegar spurt var um Hlaðkolluna, nöktu systur Baldursbrárinnar held ég að hann hafi kallað hana... Ég hef ekki heyrt þessa lýsingu áður. En allavega þá er ég sjokkeruð yfir grasafræðifáfræði fjölmiðlafólks en ég held að einungis tveim grasaspurningum af sex hafi verið svarað rétt... En allavega þá komst Stöð 2 áfram með Odd og Láru Ómars og líka Fréttastofa Útvarps en ég ætla að halda með þessum tveim liðum.. Næstu undanúrslit eru held ég á páskasunnudag...
Valdi og Benni eru að puðast í grisjuninni í Skorradalnum. Eitthvað kom þeim á óvart í hve litlu formi þeir voru en þeir kláruðu snemma í gær og voru eitthvað þreyttir og aumir svo þeir skelltu sér bara í sund í heitapottinn í Borgarnesi... Næs... enda er Sundlaugin í Borgarnesi með bestu potta á landinu og fína inni- og útiaðstöðu, gufubað og fínan tækjasal.. Hrein snilld...
Ég fór í minn daglega göngutúr í Kirseberggarðinn og það var mígandi rigning og hálfgert slagveður... Ég reyni að labba alltaf fjóra hringi og ég var næstum búin að gefast upp og labba heim eftir fyrsta hring og annan hring og þriðja en ég hafði þetta af... Þetta var mjög hressandi.. enginn á ferðinni þar sem þetta telst líklega mjög vont veður hér í Malmö.. Hið undarlega gerðist að skrefamælirinn minn ákvað að poppa aftur í gang en hann hafði verið bilaður í smá tíma auk þess sem ég missti hann ofan í vaskinn þegar ég var að þvo peysu af Valda!!!! Ég hélt hann væri endanlega dauður þá en viti menn ég ákvað að prófa hann áðan og hann svínvirkar... Ég labbaði heil 5267 skref, 4,89 km og brenndi 329 hitaeiningum á þessum 53 mínútum og 38 sekúndum sem ég var að labba....
Jæjja það er ótrúlegt hvað ég get rövlað miðað við að það er ekkert að gerast hjá mér..
Bestu páskakveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.