20.3.2008 | 10:13
Snjókoma og sjónvarpsleysi
Hér bara snjóar og snjóar.. Það er hvít jörð og þriggja stiga hiti, ósköp milt og jólalegt.
Valdi er kominn í Borgarfjörðinn. Hann og Benni gista hjá Sidda vini hans Benna í Borgarnesi en í gær voru þeir að stússast í bænum þar sem Valdi þurfti að gerast aftur Íslendingur eins og hann segir til að geta unnið verkið í Skorradalnum. Þeir sóttu líka græjur sem þeir voru að fjárfesta í fyrir verkið en Valdi keypti sér kjarrsög (ekki það að ég hafi hugmynd um hvernig slíkt lítur út)... Planið var svo að byrja að grisja í dag og vera duglegir yfir páskana.
Í gær ákvað ég að fara í búð og kaupa einhvern mat fyrir hátíðirnar. Ég ákvað meira að segja að fara á bílnum hér upp í næstu götu því ég nennti ekki að bera allt dótið heim... Ég hamstraði allskonar mat og keypti í pizzur ef einhver skyldi koma í heimsókn.... Svo kom í ljós að Coop búðin lokar bara ekkert yfir páskana, meira að segja opin á páskasunnudaginn svo hömstrunin var alger óþarfi en nú sit ég uppi með mikið magn af mat..
Í gær hurfu Digital sjónvarpsrásirnar.. Ég veit ekki hvað er vandamálið en þetta er bara týpískt Telía.. Mér gæti ekki staðið meira á sama þar sem ég hef enn opnu stöðvarnar sem eru 18 og ættu nú alveg að duga manni fram yfir páska... Á meðan netið hangir inni þá er ég hamingjusöm.
Í gær var ég að klára að vinna Ellenberger-gildin fyrir hópverkefnið "mitt" sem er ekki mitt hópverkefni lengur... Ég held ég hafi samið ansi illa af mér þegar ég bauðst til að halda fyrirlestur um litun á ull úr fléttum og skófum í stað þess að vera með í hópverkefninu.... Ég slapp nefnilega ekki við minn hluta af hópverkefninu en þarf að gera aukalega fylrlestur og ritgerð.. Dö.... En þetta er óskaplega skemmtilegt ritgerðarefni og ég fékk heimildir hjá kennaranum og svo komu loksins bækurnar sem ég pantaði á Amazon í gær en tvær þeirra eru um litun úr fléttum og skófum. Þannig að ég er með fullt af fínum heimildum... Ég er líka búin að biðja Bolla hennar Rakelar að kaupa fjallagrasavín og fjallagrasahálstöflur í fríhöfninni heima og ég ætla að bjóða upp á það meðan ég held fyrirlesturinn...
Í dag ætla ég að klára að fara yfir vistfræðiverkefni númer 7 og byrja svo á sjálfri ritgerðinni. Einu pásurnar verða til að labba í Kirseberggarðinum og til að hlusta á spurningakeppni Fjölmiðlanna sem er á dagskrá Rúv kl. 13.00 (14.00 í Svíþjóð) en að sjálfsögðu held ég með Stöð 2 og Bylgjunni.
Bestu kveðjur frá Svíþjóð
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.