18.3.2008 | 17:08
Páskahret...
Ætli þetta sé ekki páskahretið sem kom í gær hér í Svíþjóð.. Það var bara stórhríð og stormur og í dag er fallegur jólasnjór (páskasnjór) yfir öllu.. Mikið var ég fegin að veðrið var ekki á ferð degi fyrr þegar Gerður og Þórunn voru hér.
Nú er Valdi farinn til Íslands í þrjár vikur.. Ég get svo svarið það að ég held ég muni veslast upp og deyja hérna án hans. Formlegri tímasókn er lokið í skólanum hjá mér en síðasta kennslustundin var í dag þannig að núna er ég bara heima að vinna ritgerð og að læra undir próf. ALEIN... En ég ætla bara að vera dugleg að prjóna, labba og læra þessa daga.. Vaggi og Lilja koma um páskana til baka frá Ítalíu svo kannski fæ ég félagsskap þar en Rakel er hins vegar að flytja heim um svipað leiti..
Valdi er að vinna grisjunarverk í Skorradal með Benna næstu vikur.
Krónan hefur verið í frjálsu falli síðustu daga og ég kíkti á gengið áðan.. shittur... fyrir stuttu síðan þá vorum við að borga 63.000 á mánuði í leigu en núna erum við að borga 90.300 í leigu á mánuði... VÁ.. það munar um minna... Sænska krónan var eitthvað um 9 krónur minnir mig þegar við fluttum hingað en er í dag 12.9 kr...
Bestu kveðjur úr snjónum í Svíþjóð
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ og takk fyrir sendinguna um daginn, Brynhildur Þórey verður flott í honum í sumar :) Það verður gaman að fá ykkur heim, þér mun örugglega bregða við að sjá litlu snúlluna sem stækkar og þroskast með hverjum deginum :) Hafðu það gott yfir páskana í lærdómnum ;)
kv. frá okkur á Vífilsgötunni
Karen (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 18:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.