Frænknar frænkur í Malmö

Þessi helgi hefur verið mjög skemmtileg. Gerður systir og Þórunn frænka voru í heimsókn en þær eru núna komnar út á Kastrup og eru á leiðinni heim.

Laugardaginn byrjuðum við í Sopstationen sem er svona eins og Góði hirðirinn á Íslandi. Það fór nú ekki betur en svo að Gerður fílaði þetta í tætlur og missti sig alveg og keypti heilan skáp!!! Ó já... Fyrir reyndar bara 4000 kr ísl. en við Valdi þurfum að sækja hann á mánudaginn og koma honum heim og finna svo út úr því hvernig við sendum hann til Íslands.. Djísus...  Síðan fórum við niður í miðbæ og röltum þar um í rólegheitum og skoðuðum td. yndislega skartgripabúð þar sem við keyptum allar eitthvað glingur enda var útsala þar. Við rákumst á Finn og Áslaugu Thorlacius á Litla torginu sem var fyndin tilviljun.. Eftir miðbæjarrölt þá fórum við upp í Lund en mestur tíminn þar fór í að leita að veitingastað við allra hæfi en síðan var bara strollað um og farið í Dómkirkjuna.

Um kvöldið elduðum við lasagnja og Gerður var látin choppa í waldorfsalat en við fengum okkur margarítur í fordrykk sem voru ansi góðar. Melodífestivalen var á dagskrá en það var úrslitakvöldið í Sænsku Evróvision forkeppninni. Eftir að hafa horft á öll lögin sem voru eiginlega alveg skelfileg þá var niðurstaðan að halda með Charlottu Perelli sem vann Evróvision á sínum tíma þegar Selma var í öðru sæti. Hún er með lag sem heitir Hero og er alveg eftir formúlunni. Hún syngur þetta í súper þröngum og þéttum kjól sem er jafn efnismikill og sundbolur og svo eru tvær ljóshærðar blondínur í svipað efnislitlum kjólum fyrir aftan.. Niðurstaðan = Þrjár ljóskur í sundbol með stór brjóst.. sem dilla sér á sviðinu og syngja grípandi lag.. Ég er hrædd um að aðrar þjóðir eigi ekki séns... Sorry.. Regína og Friðrik en þetta er bara búið spil..

Á sunnudeginum eftir nýmalað Gvatemalakaffi og morgunverð þá var haldið upp í Wallakra krukkugerðina sem ég er svo svakalega hrifin af.  Ég er reyndar búin að bóka mig á námskeið hjá Wallakra í byrjun apríl í fjórar klst. að læra að renna krukkur.. Vá ég er ekkert smá spennt. En allavega þá dró ég Þórunni og Gerði nauðugar viljugar að sjá krukkugerðina. Gerður féll fyrir þessu og keypti eina reyndar 50 ára gamla krukku sem var svakalega flott og ég var eiginlega græn af öfund yfir... Ég keypti sjálf tvo skrautmuni og annar var enn volgur úr ofninum, í alvöru. Við löbbuðum aðeins um í skóginum fyrir utan en drifum okkur svo niður í Malmö til að skoða Bryggjuhverfið sem er mjög sjarmerandi nýtt blokkarhverfi við bryggjuna. Þar eru kaffihús og fljótandi íbúðir og gríðarlega mikið mannlíf. Skrýtið að hugsa til þess að þarna býr fólk á jarðhæð þar sem er stríður straumur fólks framhjá á góðviðrisdögum og um helgar. Ekkert prívací og við horfðum bara beint inn í stofu hjá fólki... En bryggjuhverfið er sjarmerandi í nýtísku stíl.

Síðan fórum við í Íþróttaoutletbúðina og þaðan í Burlov Center í leit að Expresso house og þar fengum við ágætis kaffi. Eftir það var haldið heim til að pakka og út á lestarstöð...

Þessi helgi var alveg einstaklega skemmtileg og ég vona að Gerður og Þórunn hafi haft gaman af Svíþjóðardvölinni.. Valdi var alveg einstaklega þolinmóður að keyra okkur út um allt og bera pokana okkar fram og til baka..  Ég held þetta hljóti að vera martröð hvers karlmanns að sitja uppi með eiginkonuna, systur og frænku að drekka margarítur og versla.. Ó my god..

NÝTT ALBÚM MEÐ ÞESSARI FÆRSLU

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband