13.3.2008 | 12:11
Netleysi enn og aftur
Ég get svo svarið það.. Daginn eftir að netið kom aftur á þá hvarf það aftur.. Ég byrjaði að hringja í þjónustunúmerið og segja þeim að þeir hefðu klúðrað þessu aftur en þeir voru bara ekki að ná þessu og heimtuðu að ég myndi ganga í gegnum allt ferlið aftur, slökkva á módeminu og kveikja, taka úr sambandi og kveikja 20 mín síðar, fara niður í Telía og sækja nýtt módem og prófa.. bla bla bla.. Ég sagði þeim að það væri EKKERT að módeminu þeir hefðu bara klúðrað þessu aftur... Svo gerist það oft að þeir taka niður gemmsa númerið og lofa að hringja eða lofa að hafa upp á tæknimanninum eða lofa einhverju og EKKERT GERIST.. Í hvert einasta sinn sem ég hringi þá er eins og maður sé að byrja upp á nýtt á ferlinu... En góði tæknimaðurinn sem reddaði þessu síðast rak augun í addressuna á verklistanum og kaus sjálfur að ganga í málið þar sem han þekkti það... Ég var samt búin að biðja oft um að hann yrði sérstaklega sendur því þetta var flókið mál og tók hann nokkra tíma að finna út úr þessu og best væri því að halda honun í þessu en nei... það var bara tilviljun að hann sá þetta.. En allavega þá hringdi hann um hádegið og kippti þessu í lag. SNILLD.. Ég náði að hafa upp úr honum nafn og gsm númer þannig að ef/þegar þetta bilar aftur þá á ég að senda honum sms.. Snilld... Þannig að nú er alveg hvínandi netsamband og allar Digital stöðvarnar mættar á svæðið líka..
Valdi kom heim í gær frá Lettlandi og Litháen. Yndislegt að fá kallinn heim aftur.. Hann keypti handa mér tvö staup (æi ég veit hvað það er hallærislegt en ég byrjaði að safna þeim óvart.. ég sver það... ) og mjög fallegan hring. Ég hafði hins vegar keypt handa honum bókina Tré í Malmö en það er bók um gömul og tíguleg tré hér í Malmö. Við ætlum að reyna að skoða eitthvað af þeim áður en við förum. Þegar að heim var komið þá fórum við í labbitúr í Kirseberg garðinum. Við tókum með okkur gamalt brauð sem við gáfum öndunum. Það var virkilega gaman. Ég hef ekki gefið öndunum brauð síðan í gamla daga niðri við Reykjavíkurtjörn....
Takk fyrir öll sörukommentin. Það eru enn nokkrar sörur eftir sem bíða hand Gerði og Þórunni sem koma um helgina. Vá hvað það verður gaman að fá þær í heimsókn.. Get ekki beðið.. Ég mun svo leggja út í gríðarlegan Sörubakstur fyrir næstu jól og þá verða bara allir söruaðdáendurnir að koma í heimsókn til að smakka..
Já Anna Lóa.. Mikið væri nú gaman að vinna á Nautastöðinni. Það hefur verið gamall draumur hjá mér síðan ég flutti á Hvanneyri að leysa Sveinbjörn af í sæðistökunni. Ég held þetta starf myndi henta mér vel þar sem ég er mjög nákvæm og skipulögð í vinnubrögðum og hef dýrahjúkkumenntunina. En ég er ansi hrædd um að Sveinbjörn sé að leita að nautahirði en ekki til að leysa sig af.. Og það starf hentar mér ekki.. En ég veit samt ekki.. kannski er það hans starf.. Kemur í ljós..
Jæjja best kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.