10.3.2008 | 18:11
Netsamband komið á..
Ég var vakin klukkan 7.30 í morgun af Teila tæknikalli... En ég var allavega glöð að einhver var að vinna í netleysis-málinu. Niðurstaðan var að María Jeppesen á neðri hæðinni hafði verið að fá sér Internet og nefndi af einhverjum ástæðum íbúðarnúmerið okkar 241 sem endaði þannig að gáfnaljósin hjá Telía fluttu tenginguna okkar yfir á hana.. Hún var voða glöð að þurfa ekki að bíða í 3 vikur.. Dö.... Það tók þá um 3 klst. að finna út úr þessu. Að lokum vorum við tengd aftur með mun minni hraða en við vorum að borga fyrir en sem betur fer var tæknimaðurinn vakandi og náði að laga það. Púff.. ég er ósköp fegin að netið er komið á.. Það er vont að læra án þess að hafa netorðabækurnar og geta googlað allt og ekkert... Ég tala nú ekki um Skyp en ég hef ekki heyrt í systrum mínum síðan í síðustu viku en Gerður er að fá íbúðina sína afhenta í kvöld.. Snilld..
Valdi er enn úti í Lettlandi. Hann fór í þjóðgarð í dag sem heitir Gauja, þar sáu þau Daphne Mezereum í blóma en það er runni sem blómstrar fjólubláu, svo fóru þau í rannsóknarstöð Skógræktar ríkisins og svo upp á hótel en þau gista rétt fyrir utan háskólabæinn Jelgava. Á morgun heimsækja þau landbúnaðarráðuneytið og skoða Ríga betur og svo heim á miðvikudag..
Helgin var róleg hjá mér en ég nennti ekki til Köben að hitta Íslendingana. Aldurinn hlýtur að vera farinn að segja til sín þegar ég vil frekar vera heima að prjóna en að fara á Íslendingaskrall í Köben... Ég stússaðist aðeins í mosaverkefninu mínu og undirbjó vistfræðiverkefnin fyrir næstu önn. Ég fór út að trimma laugardag og mánudag en ég held svei mér þá að legghlífarnar sem Hrafnhildur Baldurs sagði mér að kaupa út af beinhimnubólgunni minni séu að virka.. Síðast þegar ég keypti legghlífar þá voru þær neon og það var líklega í kringum ´85!!!! En þessar eru nú bara svartar og eru undir íþróttabuxunum en þær virðast vera að gera gagn og ég gat hlaupið í dag án teljandi sársauka.. Snilld.
Í dag var 10 stiga hiti og yndislegt vorveður, mannlífið í Kirseberggarðinum var mikið, hundar og menn á flakki og börn úti um allt. Mikið á ég eftir að sakna garðsins þegar ég kem heim.
Rakel kom svo í heimsókn síðdegis með póst handa okkur og við fengum okkur kaffi og sörur.. Skrambi geri ég góðar sörur en ég missti mig og fékk mér tvær en þær eiga ekki að vera á mínum matseðli þessa dagana . Flutningar voru enn og aftur aðalumræðuefnið...
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk kærlega fyrir okkur, sófinn virkar fínt og sörurnar voru guðdómlegar ;)
Ég fann fyrir því að vorið er lengra komið þarna suður frá, því hér er enn hráslagalegt, en ég læt mig hafa það þessa vikuna, hlakka til að hitta ykkur almennilega eftir páska.
kv
Lilja
Lilja Filippusdóttir (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 19:20
Sammála síðasta ræðumanni, skuggalega góðar sörur!!
kv
Rakel
Rakel (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 20:42
Já gott að heyra með netsambandið.
Sörurnar þínar smakkaði ég einmitt um áramótin í fyrra á Hvanneyri og tek ég undir það að þær voru rosalega góðar. Fæ vatn í munnin að hugsa um þær.
Gott að heyra að legghlífarnar eru að virka. Mæli með þær að nota þær sem mest. Einnig eftir að þú hefur skokkað eða þegar kalt er í veðri, þó þú sért ekki að skokka. ( Bara pínu meiri legghlífaráð ef þú vilt
)
Hafðu það gott
kv
HB
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 22:22
Hæhæ.. gaman að lesa um ykkur þarna úti.. ég rakst inn á síðuna út frá síðunni hjá Bebbu :) en ástæðan fyrir því að ég fór að leita að þér er að Sveinbjörn á nautastöðinni er að leita sér að sumarstarfsmanni og mér datt þig í hug þar sem þú hefði áhuga á slíku .. eða hvað ?
sendu mér í mail og ég skal senda þér auglýsinguna hans :)
kveðja af Eyrinni góðu :)
Anna Lóa (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 15:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.