7.3.2008 | 14:52
Verkefnaskil og síðbúnir gestir
Valdi var í gær í borginni Kaunas í Litháen. Eftir að hafa skoðað borgina þá heimsótti hópurinn Landbúnaðarháskólann í Kaunas og fengu leiðsögn um skólann. Síðan var þeim gert að heilsa upp á skógfræðinemana þar í landi en sá hópur var víst heldur uppburðalítill og feiminn. Í Kaunas var snjókoma og bara alvöru íslenskt veður segir Valdi og gladdist greinilega mjög þar sem við höfum verið í veðurleysu í Malmö í allan vetur. Í dag stefndi í að þau myndu hlusta á nokkra fyrirlestra og skoða Vilníus betur.
Vaggi og Lilja komu milli tólf og eitt í gærkvöldi.. Ég sat nú aðeins hjá þeim og spjallaði þrátt fyrir hvað það var orðið seint. Gaman að hitta þau þó það hafi verið stutt en það náðist að troða ofan í þau nokkrum sörum. Þau gistu en ég var farin í morgun þegar þau vöknuðu en ég þurfti að leggja af stað úr húsi klukkan sjö. Ég var svolítið stressuð því við áttum að flytja hópverkefnið okkar um Ellenberger gildin (ekki spyrja...). Ég var orðin svolítið hrædd um að ég þyrfti að standa undir þessum fyrirlestri ein því hinar stelpurnar voru eitthvað að slóra í þessu og viðhorfið er svolítið slappt þegar einkunnin er bara staðið og fallið. En viti menn þær komu nú bara á óvart með sinn hluta og þetta var nokkuð fínt bara.. Kennararnir hrósuðu okkur mikið, já voru eiginlega bara stórhrifnir, ég var mjög ánægð enda hafði ég nú lagt talsverða vinnu í þetta. Við höfðum óvart fengið lang erfiðasta verkefnið.. smá mistök hjá kennurunum en við unnum vel úr því.
Síðustu daga hef ég verið að lesa Konungsbók eftiri Arnald Indriðason, ég hef lesið nokkrar bækur eftir hann í vetur og Grafarþögn var sú besta og ég var frekar fúl þegar ég fattaði að Konungsbók væri ekki um Erlend rannsóknarlögreglumann. En vá þegar ég byrjaði á Konungsbók þá bara gat ég ekki hætt.. Þetta gerist á þeim slóðum þar sem ég er í skólanum inni í Köben sem gerir það svolítið meira sjarmerandi að lesa þetta.. Söguhetjurnar áttu það til dæmis til að fá sér bjór á Hvids vinstue sem þeir kalla Hvít en það er uppáhalds barinn minn í Köben (þekki reyndar enga aðra!!!) En bókin var meiriháttar og endirinn alveg gersamlega óvæntur og ekki óraunverulegur... Hrein snilld... Hrein snilld...
Annars stefnir bara í rólega helgi í internetleysi og Valdaleysi... Sem betur fer hef ég nú nokkrar sjónvarpsrásir til að horfa á og auk þess er ég á hraðferð með Rósaleppaprjónið mitt.. Ég er alveg í stuði þessa dagana. En ég tók líka með mér mikið af gögnum heim úr skólanum fyrir næsta hópverkefni.. Best að nota bara tímann vel þessa helgina í frið og ró.
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alveg er ég sammála þér með Konungsbók....hrein snilld.
Sé að þú ert farin að undirbúa heimkomu, byrjuð að trimma - flott hjá þér
Sigga Júlla (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 09:44
Ég las Konunsbók einmitt líka þegar ég var í Köben - alveg frábær bók!
Er komin upp á yfirborðið eftir brjálæðis kennslutörn, að þurfa að kenna ALLT á átta vikum og það í fyrsta sinn er þvílík gríðarleg vinna!
Kveðja,- Elín Björk.
Elín Björk (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 16:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.