Sörubakstur og Vottar Jehóva

Sörubakstur já... Í mars.. Ójá... Það er kökudagur í skólanum á morgun og ég fékk í mig einhvern rosalegan fiðring að baka Sörur þar sem ég hafði sleppt því um síðustu jól en jólin þar áður bakaði ég heimsins bestu Sörur.. Ég vildi bara vita hvort ég gæti enn bakað góðar Sörur eða hvort þetta hefði verið tilviljun en ó jú.. Sörurnar voru stórkostlegar og fallegar. Ég ætla með þær í skólann á morgun en ég ætla að reyna að geyma nokkrar fyrir gesti... hint hint... Vaggi og Lilja!!!!!

Valdi var í hagfræðiprófinu í dag.. Það var langt og það var erfitt.. en hann heldur að hann hafi náð þessu eða vonar það allavega.  Það er mikill léttir yfir honum þegar þetta er búið en þetta var alveg hundleiðinlegt fag en auðvitað nauðsynlegt líka.

Á morgun fer Valdi til Litháen og svo til Lettlands í skólaferðalag. Þetta verður örugglega ævintýri hjá honum en hann verður í 8 daga.

Við hringdum í Norrænu í dag og reyndum að panta miða heim fyrir bílinn og okkur 8. júní frá Bergen. En auðvitað voru öll tveggja manna herbergin upppöntuð.. Andsk...... Við erum á biðlista og vonum það besta. Valdi er búinn í skólanum 1. júní og þá ætlum við að rúnta upp Svíþjóð og svo niður Noreg og taka ferjuna í Bergen en svo er stoppað heilan dag í Færeyjum og við getum væntanlega farið frá borði og heimsótt vini og ættingja. Ef við fáum miða það er að segja en annars fer bíllinn í gám og við í flug....

Í dag var ég ein heima að læra þegar dyrabjallan dinglaði. Við förum reyndar aldrei til dyra hér en ég svaraði í þetta sinn því ég á von á svo mörgum bókum frá Amazon en þá heyrði ég bara Rússkí, Votta Jehova... Bla bla... Ég sagði bara nei nei takk takk og skellti á dyrasímann.. Ég heyrði samt að Vottarnir komust inn í húsið og ég hélt bara áfram að læra og svo var bankað á innri hurðina... Ég gleymi mér og bara opna og þar standa tvær konur önnur eldri og hin yngri og byrja að tala um Votta Jehova og ég veit ekki hvað og hvað... Ég brosi bara og segi nei takk nei takk og loka bara hurðinn og skelli hratt í lás og viti menn þær halda áfram að banka og taka í húninn.. COMMON....

Við vorum í mat hjá Rakel og guttunum í kvöld. Við fengum alveg rosalega gott lasagnja með hvítlausbrauði.. Ummm það var svo gott enda gert alveg frá grunni en ekki úr pakka eins og mitt.. Nú verð ég að hætta þessu pakka lasagnja dóti.... svo fengum við ís í eftirmat þannig að við ultum út á meltunni...  Nú fer að styttast í heimferð hjá Rakel þannig að mest var talað um skipulagningu á flutningum og kostnað við slíkt.

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Namminamm, sörur eru það besta sem ég veit um. Við verðum að koma í heimsókn, ætluðum reyndar að athuga hvort við mættum liggja í svefnsófanum aðfaranótt föstudagsins. Þurfum að brasa aðeins í Malmö á föstudaginn áður en við förum til köben

mbk

Vaggi 

Vaggi (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband