Skemmtileg helgi

Þrátt fyrir mikil vonbrigði að Dr. Gunni færi ekki út með Dr. Spok þá er ég alveg sátt við Friðrik Ómar og Regínu. Klæðnaður þeirra var talsvert betri en í fyrra skiptið. Ég held að málið sé eins og Bebba sagði í kommenti hér í síðustu færslu að það voru tvö skrýtin lög og þá deildust akvæðin á þau... 

Ragnar og Hrafnhildur komu til okkar á sunnudagssíðdegi. Við fórum í smá verslunarleiðangur þar sem allt virðist mun ódýrara hérna en í Noregi. Síðan voru eldaðar pizzur og setið allt of lengi fram eftir nóttu... Ég held ég hafi verið svo langeygð eftir íslenskum gestum að ég talaði stanslaust á tvöföldum hraða allan tímann..  Yndislegt að fá svona góða gesti og vonandi koma þau aftur (ef þau þora)!!!!! 

Gærdagurinn fór nú bara í leti og afslappelsi en dagurinn í dag verður tekinn með trukki. Mikil tölvuvinna framundan fyrir skólaverkefni, styrkumsókn, vistfræðiverkefnin og fleira og fleira... Það er alveg ferlegt hvað tíminn líður hratt en nú er svo komið að lítil kennsla er eftir í mosunum og aðallega mosagreining og undirbúningur fyrir stóra mosalokaverkefnið sem verður flutt í lok mars..

ATH: Nýtt myndaalbúm úr mosaferðinni í síðustu viku.

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá já takk kærlega fyrir okkur, og  pizzurnar voru rosalega góðar. Þeta var sko hlaðborð af heimabökuðum pizzum, það er ekki lýgi að þú ert rosalega myndarleg húsmóðir Guðrún.

Þetta var rosa gaman að ná að hitta ykkur á hraðferð okkar um Danmörk, Sviþjóð og yfir til Noregs. Vona bara að við náum að kíkja aftur við tækifæri.  Ekki spillir fyrir að þarna er líka mun ódýrara hjá ykkur en okkur.

Bestu kveðjur og velkomin hingað yfir við (ég get samt ekki lofað svona frábærum svefnsófa eins og ykkar, en það er allavega svefnsófi )

Hilsen HB 

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband