Evróvisionpælingar og hættuleg bókakaup

Nú er heil vika af "Multi Level politics" búin hjá Valda og hann telur það sé kraftaverk að hann sé á lífi eftir þessa viku enda var þetta ólöglega leiðinlegt. Það hljóta að vera einhverjir Evrópustaðlar fyrir leiðindi og þetta fór yfir mörkin... Hins vegar hefur hann verið flensulegur síðari hluta vikunnar og með hausverk sem gæti stafað af leiðindum.  Enn er vika eftir af þesum kúrs en aðrar áherslur verða í næstu viku og vonandi skemmtilegri.

Ég skilaði ritgerðunum tveim útprentuðum til kennarans í KVL á föstudaginn. Báðar í tveim eintökum. Ég ætlaði að gorma þetta inn en það virðist vera mjög flókið mál að gorma inn í DK og SV en enginn vissi hvar það væri gert. Ég fór í skólabóksöluna sem sagði mér að kaupa gorm hjá þeim og labba svo nánast yfir hálfan bæinn og þar gæti ég komist í vél til að gataBlush... Glætan... Svo ég keypti bara einhvert plast dót sem maður þræðir upp á blaðsíðuendana og virkar alveg eins vel og gormun.. Púff..  En þessi bóksala er alveg STÓRHÆTTULEG.. Þvílíkar bækur.. ÞVÍLÍKAR BÆKUR.. .Plöntufræði og aðallega dýrafræði enda er þetta náttúrulega Dýralæknaháskólinn.. Vá.. ég þurfti að beita mig mjög hörðu til að kaupa bara tvær bækur, eina um plöntuanatómíu sem er alveg stórkostleg og svo kilju um tilfinningalíf dýra eða svona pælingar um hvort dýr leiki sér eða stundi kynlíf sér til ánægju og yndisauka!!!!

Talandi um bókakaup þá missti ég mig á Amazon um daginn og keypti nokkrar Mosa og fléttu bækur.. Snilld.. Þær eru byrjaðar að berast og svo missti ég mig líka í skólanum í Mosatímanum þar sem kennarinn reyndi að selja mér Nordisk Lavflóra (Fléttuflóran) Síðasta bindið af þrem var að koma út.. JÚ AUÐVITAÐ KEYPTI ÉG ÞETTA ásamt sænskri Felthandbók fyrir fléttur. Ok ok.. ég veit ég þarf að fara í bókakaupameðferðBlush

Í kvöld eru víst úrslitin í Evróvision undankeppninni heima á Fróni. Ég ákvað að setja mig inn í málin í snarhasti, hvaða lögum maður á að halda með og svoleiðis en Valdi ætlar að tengja tölvuna mína við flatskjáinn, Valda til mikillar ánægju eða þannig en hann þolir ekki þetta Evróvision rugl. Hann samdi hins vegar af sér í gær þegar hann sá Óttar Proppé flytja eitthvað lag og sagðist skyldi horfa á þetta með mér ef hann fengi að kjósa Dr Spokk eða Spúkk eða hvað hann kallar sig.... Jú jú það var nú lítið mál sérstaklega þar sem það er lagið hans Dr. Gunna og ég styð hann í einu og öllu enda gamall draumur hjá mér að senda Gunna í Evróvision.. Hehe..

Friðrik Ómar og Regína eru reyndar allaf flott en hver klúðraði búningunum þeirra og bakdansaranna? Friðrik Ómar er eins og hann sé í gömlum, of litlum jakkafötum af Páli Óskari og Regnína er í einhverjum eitíghs kjól sem gerði ekkert fyrir hana... Vonandi mæta þau í skárri fötum í kvöld.

Ragnheiður Gröndal alltaf sæt og syngur ljúft lag en bara ekki alveg rétti Evróvisionstíllinn (líklega er þetta hrós)...

Ekki líst mér nú á þetta Hahaha dú dú dú lag eða hvað sem það heitir.. Eitthvað hafa gaurarnir óverdósað á brúnkuspreyinu og stúlkukindin getur ekki sungið en það virðist vera aukaatriði þar sem bévítans lagið situr fast í hausnum á mér síðan í morgun og ég er ansi hrædd um að þetta gæti gengið vel í Evrópubúann.

Jæjja stuðkvöld framundan hjá mér allavega en Valdi ætlar að elda góða steik fyrir okkur og reyna að þrauka í gegnum útsendinguna. Á morgun koma svo Ragnar og Hrafnhildur í heimsókn en ég er alveg yfir mig spennt að fá loksins gesti enda frekar fátt um Íslendingana hérna megin Eyrarsundsins.

Kveðjur frá Malmö

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ

Ég var einmitt að horfa á keppnina.

Tryggvi sagði þegar símakosningin fór af stað að fyrst það væru tvö svona ,,klikkuð" lög þá myndu atkvæði þeirra sem vilja senda svona lög út dreifast á þau og Friðrik Ómar og Regína færu út. Hann reyndist sannspár, hvort sem það er svo það besta fyrir Íslands hönd eða ekki!  

Ég vissi ekki alveg með hverju ég ætti að halda, en lagið hennar Fabúlu var náttúrulega lang flottast en átti ekki heima í þessari keppni, Páll, Birgitta og Magni áttu heldur ekki heima þarna fannst mér lögin sem þau sungu voru hreinlega leiðinleg.

Vonandi skemmtu þið ykkur vel yfir þessu, og ohh hvað ég vildi að ég væri að koma í heimsókn til þín... Þegar ég vaknaði í morgun fannst mér bara alveg hræðilegt þegar ég áttaði mig á því að ég var ekki í Noregi... sakna þess ótrúlega þessa dagana!

bless í bili 

Berglind (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 22:28

2 identicon

Já Bebba..

Þetta plott hans Tryggva er náttúrulega rétt... Tvo skrýtin lög eins og maður segir.. Eftir að hafa horft á Dr Spúkk í annað sinn í kvöld var ég alveg þeirrar skoðunar að þetta væri snilld.. Smá svona Silfurtónatónn sem skapar bara nostalgíu hjá mér og svo var ég náttúrulega mikill Hamari í den.. En ég er náttúrulega ekki hlutlaus þar sem ég er einlægur aðdándi Dr. Gunna síðan í SH draumi í gamla daga...  En það að senda Friðrik og Regínu út held ég að sé bara fínt mál.. Þau redduðu fötunum sínum vel og Regína stórglæsileg í þessu outfitti...

Já maður er aldrei ánægður.. Þið saknið Noregs og við söknum Hvanneyrar.. hehe..

PS. ég sá tvö af þeim lögum sem enduðu í undanúrslitum í Sænsku keppninni í kvöld og ég verð að segja að það er lítil samkeppni þaðan.... Ó my god.. Og Svíar eru greinileiga með verri búningahönnuði en Íslendingar og þá er nú mikið sagt..

Kveðjur frá Svíalandi..

Guðrún og Valdi (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 23:45

3 Smámynd: Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Ég er alveg undrandi á því að Íslendingar skyldu ekki kjósa Dr. Spock lagið með gulu uppþvottahönskunum, sérstaklega í ljósi þess að búið var að vippa hluta þess yfir á serbnesku sem hefði án efa gengið vel í austurtjaldspakkið sem hefur einokaða símakosninguna undanfarin ár. Dr. Spock hefði sómað sér vel með kalkúninum Justin sem er framlag Íra til keppninnar í ár.

Eyjólfur Ingvi Bjarnason, 24.2.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294953

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband