20.2.2008 | 22:30
Tvær ritgerðir í höfn
Nóg hefur verið að gera hjá Valda bæði í skólanum og svona almennt. Hann er að drukkna í kúrs núna "Forest and society: Processes, interactions, and policies. og í þessari viku eru þeir í Multi level politics and international forest regime. Wowww... hljómar ógeðslega skemmtilega eða þannig... Þetta er svona skógar hagfræði, stjórnmál og stefnur á alþjóðavísur... Ekki alveg uppáhaldið hjá Valda.. Hann er hins vegar búinn að læra mikiði um hvernig á að "plotta" chatta og skipuleggja og pæla á alþjóðlegum ráðstefnum... en lykilatriðið er að koma vel út hvíldur á svæðið og halda sér svo lengst vakandi um kvöldið... Gríðarlega mikil fræði þarna að baki......
Valdi er líka á fullu þessa dagana að skipuleggja mastersritgerðina og framhaldið á náminu og líka Íslandsferðina. Nóg að gera.
Ég fór í vettvangsferð í mosafræðinni í gær.. Ó ég var svo þreytt um morguninn að ég hélt ég myndi ekki hafa það í ferðina en sem betur fer þá tókst það.. Ég þoli svo illa þessar lestarferðir að ég bara sef ekki nóttina fyrir Köben ferð... En Mosaferðina var mjög skemmtileg. Þrír mosanördakennarar sem voru algjört æði, tveir svona í eldri kanntinum þvílíkir mosar sjálfir en ótrúlega fyndnir.. og svo Ulrik sem kenndi mér sveppina. Ég kom heldur seint heim aftur og fór snemma að sofa því ég var alveg úrvinda...
Á miðvikudagsmorgni vaknaði ég snemma og settist við skrifborðið því í dag klukkan þrjú átti ég að skila ritgerðunum tveim: Nicotiana og Litunarjurtirnar í Gvatemala.. Ég átti bara pjatt eftir en það pjatt var ótrúlega drjúgt en ég náði að skila um klukkan eitt. Snilld. þá er það búið og ég komin með prófrétt í Tropical botany, hins vegar er ekki séns að ég mæti í prófið á mánudaginn því það er of mikið að gera. Ég skil ekki af hverju próf úr Block II er í miðjunni á Block III þegar maður er byrjaður í öðrum fögum og verkefnaskilum. Enda held ég að stór hluti bekkjarins hafi það ekki í prófið og ég hugsa að einhverjir hafi ekki náð prófrétti... Upptökupróf er í byrjun apríl sem hentar mér óskaplega vel því þetta er skemmtilegt fag og ég vil lesa vel undir prófið.
Þegar Valdi kom heim fórum við í stuttan göngutúr niður í bæ og enduðum með að fá okkur að borða. Ég er núna á kafi í vistfræðiverkefnunum enda skilafrestur á morgun á verkefni 5 fyrir mig og verkefni 6 fyriri krakkana..
Valdi hefur náð að hjóla um án þess að kless á einhvern eða eitthvað.. Hann hefur komsti að því að það eru 3,3 km í sænskutímana sína. Já Rakel ég held að hjálmur sé góð hugmynd enda eruð þið að hjóla á sömu slóðum.. iiiiiiiiiiii
Annars endaði kvöldið á sjónvarpsglápi en ég datt niður í þátt um íshótel sem kom í ljós að var sama íshótel og hún Lilja Filipusar var að "vinna" við í einhverja daga um daginn.. Þetta er einhvers staðar lengst í Norður Svíþjóð og sýndi undirbúninginn við opnunina/bygginguna á hótelinu sem er í kappi við tímann og hitastigið.. Þetta var svo dramatískt að það lá við að maður felldi tár þegar það tókst að opna hótelið á réttum tíma.. HALELÚJA... http://www.icehotel.com/
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 294953
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ! Ég sé að það er alltaf líf og fjör hjá ykkur. Valdi stórhættulegur á hjólinu sem þýðir að maður verður að vera virkur í forvörnunum áður en hann kemur heim.... auglýsa eftir tilboðum í hjólahjálma handa öllum staðarbúum
Mikið verður nú gaman að fá þig í skokkið Guðrún, ég lofa - ég skal pína þig með
Bið að heilsa Valda - Haukur biður að heilsa ykkur.
Kv. Sigga
Sigga Júlla (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 08:41
gott hjá þér - ég held þú ættir að leggja fyrir þig að skrifa spennusögur - það var orðið mjög spennandi að fyrlgjast með hvort þetta hefðist nú í tæka tíð
bestu kveðjur Guðbjörg
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 21.2.2008 kl. 18:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.