Samnorrænt súperhallæri...

Í dag fórum við í kaffi til Rakelar og Guttanna og þar fengum við dásamlegar vöfflur með rjóma og líka bananabrauð sem var súpergott.... Þetta minnti mig á að ég tók vöfflujárnið mitt með mér út en hef bara ekkert bakað vöfflur... Skandall... Við sátum vel og lengi og spjölluðum en ég held það sé kominn heimferðarhugur í alla aðila enda sátum við og skoðuðum ferðaáætlun Norrænu í bak og fyrir... Annars held ég að það verði gaman að upplifa vorið hér talsvert fyrr en heima en ýmsar plöntur eru farnar að blómstra eða bruma nú þegar.

Morguninn hafði farið í ritgerðarsmíði og það gerði kvöldið líka en ég er komin í verulegt tímahrak með ritgerðina mína sem ég á að skila á miðvikudag. Ég er svo gott sem búin með aðra ritgerðina en ég held ég vanmeti samt pjattvinnuna sem er eftir eins og myndaskrá og öll heimildavinnsla í Litunarjurtunum og innsetning á öllum myndum. En ég hef allan morgundaginn til að klára þetta og það hlýtur að ganga.. Valdi hefur sinnt sænskunáminu um helgina auk þess að elda ofan í mig með myndarbrag...

Um kvöldið sáum við þann allra hallærislegasta tónlistarþátt sem ég hef nokkru sinni séð... Hann heitir Melodyfestival 2008 held ég en það er mikið fjallað um þetta í blöðnum hér. Þetta er sum sé einhver lagakeppni sem mig grunar að sé undanfari að Evrovision. Þarna er hún Carola þeirra Svía í einhverjum páskagulum kjól og komin í undanúrslit... Ég held þetta sé allra versta samnorræna hallærið sem ég hef séð... Kynnirinn var alltaf að skipta um jakkaföt og þau bara versnuðu og í úrslit voru einhverjir fávitalegir tvíburar í rauðum jakkafötum.. Ég var alltaf að skipta um stöð því ég þoldi þetta ekki en Valdi stóð mig að því að fara aftur á stöðina og glápa með kjálkann alveg niðri af undrun... Þetta var alveg ólýsanlega hallærislegt.. Og lítið hægt að gera í stöðunni annað en að emja úr hlátri yfir þessu eða leita að CSI á annarri stöð...

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér er ekkert farið að blómstra, rok og rigning og spáð kólnandi.

Ekki ætla Svíarnir að fara að senda hana Carolu í hundraðasta skiptið, eiga þeir enga aðra söngvara.  Hvað með Harry´s í gullnu skónum, það er nú bara búið að senda þá einu sinni

Gerður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband