16.2.2008 | 21:36
Kynlíf mosa...
Á föstudaginn fór ég í skólann í Fléttu- og mosafræðina og það var ljómandi skemmtilegt. Eftir að ég hætti í tölfræðikúrsinum þá hef ég getað einbeitt mér meira að mosunum og þeir tímar eru mjög áhugaverðir. Eftir fyrirlestur um æxlunarferil mosa sem nefnist öðru nafni "kynlíf mosa" sem var mjög svo spennandi þá greindum við mosa og fléttur í smásjám það sem eftir var.. Ó það er svo gaman... Eitt vandamál er þó að kúrsinn sem á að vera á ensku eru meira og minna á dönsku og allt lesefni og "Lyklarnir" að mosum og fléttum eru allir á dönsku.. Ég er orðin frekar pirruð á "enskum" kúrsum á "dönsku"... En á föstudaginn var svo næs stelpa við hliðina á mér og hún hafði svo miklar áhyggjur af að þetta væri allt á dönsku að hún meira að segja þýddi fyriri mig enskuna á ensku..... hehe.. ég bara brosti og þakkaði fyrir.. og við unnum okkur saman í gegnum lyklana og það var mjög gaman og fræðandi.. Vildi að fleiri væru svona næs við okkur "útlendingana"....
Valdi sótti mig á Central station og við fórum og versluðum mat fyrir helgina og fjárfestum í "flakkara" svona 500 gb utanáliggjandi minni fyrir tölvuna.. En ég fékk einhverja óværu í tövluna í gegnum msn um daginn og panikkaði að ég er ekki með neitt Bakkupp... En nú er ég búin að setja allt dótið á flakkarann þannig að ef að tölvan krassar þá er ég ekki alveg lost..
Valdi keypti sér "myndavél" á tölvuna svo nú geta krakkarnir séð hann þegar þau tala saman á Skypinu..Og við sjáum þau... Skypið er náttúrulega hrein snilld.. maður borgar einhverjar örfáar krónur eða ekki neitt til að tala við fólk heima... Getum bara ekki talað í farsíma en allt annað virkar... Snilld þessi tækni... Valdi spjallaði í gær við krakkana í hátt í tvo tíma og í kvöld í allavega einn tíma... Og hann sá þau og þau hann.. Snilld... .
Laugardagurinn hefur verið rólegur og fór í ritgerðarvinnu en ég þarf að skila af mér ritgerðinni um Nicotiana sem er svo gott sem tilbúin og líka ritgerðinni um litunarjurtir í Gvatemala á mánudaginn... Ég er komin með tvær blaðsíður í Gvatemala ritgerðinni en það hins vegar er svo skemmtilegt efni og ég er með þetta alveg í hausnum á mér að ég hef ekki áhyggjur...
Af einhverjum ástæðum hefur flensan ákveðið að taka sigi upp aftur og Valdi vaknaði fullur af kvefi og ég fékk hálsbólguna aftur og hitavellu.. En við ákváðum að líta algerlega framhjá þessum aumingjaskap í þeirri von að þetta myndi bara hverfa...
Við fórum í fínan labbitúr í Kirseberggarðinum sem Valdi sagði mér í dag að héti reyndar Beljerspark sem mér finnst afspyrnu asnalegt nafn og mun því kalla hann Kirseberggarðurinn áfram... Þar sáum við nokkrar konur að bera inn veitingar í félagsheimilið og svo heyrðum við hvell... ein hafði misst köku og bakka með einhverju sem leit út eins og smurðar flatkökur í jörðina... Spælandi.......
Já Þórunn Edda.. einmitt!! ég frétti að Kusan hefði gengið vel... Frábært...... Og hátt í 200 manns mætt.. Þetta eykst alltaf á milli ára... Frábært... Og vonandi gekk háskóladagurinn vel í ár... Var með létta heimþrá vitandi af háskóladeginum en ég var nú þarna í fyrra....
Kvöldið fór í að prjóna dúllur og jafna sig eftir stórkostlega máltíð sem Valdi eldaði.. Við skulum hafa það á hreinu að öll þau aukalíló sem ég bæti á mig í vetur eru VALDA AÐ KENNA.. Hann er alltaf að elda svona snilldar máltíðir með rjómasósu og tilheyrandi....
Kveðjur frá Malmö...
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.