14.2.2008 | 22:44
Flensa á undanhaldi
Jæjja flensan er á undanhaldi eftir að hafa verið mjög leiðinleg í nokkra daga. Ég get svo svarið að ég þoli ekki að vera veik heima.. bara þoli það ekki.... Það er svo leiðinlegt að hanga heima og halda að maður geti reynt að læra með tissjú í annarri hendi og Nezeril í hinni... ÓÞOLANDI...
En það sem helst hefur gerst til tíðinda er að ég er hætt í tölfræðinni/tilraunafræðinni. Ég gerði mér grein fyrir því að ég hefði ekki skilið orð af því sem kennarinn sagði eftir fyrsta hálftímann í fyrsta tímanum. Ég fékk verkefni í hendurnar sem ég vissi ekki hvernig snéri. Þetta er kúrs fyrir masters- og doktorsnema og ég bara var ekki nálægt því að ná þessu.. Ég ætla ekki að svekkja mig lengur og held að tíma mínum sé betur varið í Mosakúrsinum sem er mjög skemmtilegur og auk þess er ég enn að reyna að ná prófrétti í Tropical botany með því að skila inn tveimur ritgerðum næsta miðvikudag en það mun alveg ganga því önnur er búin og hin er alveg að bresta á..
Valda gengur vel í sænskunáminu og lærir samviskusamlega heima með orðabókina á lofti. En nú er hann farinn að slá um sig með sænskum orðatiltækjum og orðum sem ég skil ekki bofs í...
Í dag frétti ég að Gerður systir og Þórunn frænka væru búnar að panta miða til Svíþjóðar í mars til að heimsækja mig.. Jibbí.. hrein snilld.. Ég vissi af Gerði enda var ég búin að pína hana lengi en svo bættist Þórunn óvænt í hópinn. HREIN SNILLD.... Þórunn er náttúrulega fyrrverandi Svíi eða þannig hún og Gunnar bjuggu hér í góðan tíma um árið..
Annars er Viskukýrin heima á Hvanneyri núna.. Ég er með emjandi heimþrá þar sem Viskan hefur verið mitt "Baby" síðan ég var skemmtanastjóri fyrir nokkrum árum... Ég skildi eftir langan "TO DO" lista fyrir skemmtinefndina núna sem virðist vera að standa sig mjög vel en mér heyrðist allt vera í fínasta lagi í dag þegar ég heyrði í liðinu. Já ég verð víst að sætta mig við að þau geta þetta án mín..
Bestu kveðjur úr vorinu í Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta var hin besta skemmtun og tókst vel í alla staði. Salurinn fullur og húsið vel skreytt að vanda
TO DO listinn hefur greinilega skilað sínu 
Þórunn Edda (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 23:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.