Rólegheitahelgi..

Helgin hefur verið róleg hjá okkur.  Við höfum eiginlega setið við sitt hvort skrifborðið alla helgina. Ég hef verið að læra og líka að sinna vistfræðiverkefnum. Valdi hefur verið að skoða mastersverkefnismál á milli þess sem hann missti sig á Facebook en hann er nýbúinn að læra á það en ég er ekki orðin svo tæknivædd.

Í gær fórum við í göngutúr í Pildamsparken sem er hér miðsvæðis og er yndislegur almenningsgarður. Valdi uppgötvaði þennan Park meðan ég var í Gvatemala og vildi endilega sýna mér hann. Það er tjörn þarna í miðjunni og það var yndislegt að labba hringinn en þessi Parkur er talsvert  mikið stærri en Kirseberggarðurinn.  Eftir það fórum við í Burlov center að reyna að finna föt á Valda (fitubolluna) Tounge.... Það gekk illa þar sem hann virðist vera dottinn upp úr unglingatískunni (guði sé lof) og við fundum ekki miðaldratískuna bara gamalmennatísku... Kannski var miðaldratískan í Dressmann en mikið óskaplega var það allt ljótt. Síðan hvenær voru mittisjakkar í tísku og endalausar þverröndóttar peysur og bleikar skyrtur... Mikið um bleikt ....    Við keyptum reyndar einar buxur í Heimsmeistaramótinu (H&M) en þær gátu ekki klikkað því Valdi á tvær eins fyrir.

Um kvöldið borðuðum við okkur til óbóta því Valdi gerði svo rosalega góða lambasteik með snilldar sveppasósu...

Sunnudagurinn fór í skrifborðsvinnu en við röltum út í Kirseberggarðinn (4 hringi) og það var ljúft. Hér er 9 stiga hiti og vorlegt. Mikið mannlíf var í garðinum og trén eru farin að bruma og allskonar gul vorblóm mætt á svæðið.  Ég sá einn Pug hund og nú er ég alveg dýróð að fá slíkt kvikyndi... Það held ég að Kátur yrði hissa....

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband