9.2.2008 | 11:03
Utanlansferð
Í gær skelltum við okkur til útlanda nánar tiltekið til Köben... Sem er svo sem ekki í frásögur færandi þar sem ég fer þangað fjórum sinnum í viku þessa mánuðina... en í gær var svona "túrista" bragur á þessu... Valdi kom með og við fórum á Café Klimt að hitta Trópí hópinn, Hlyn, Dýrleifu og Lindu. Valdi gerði heiðarlega tilraun til að BANNA umræður um Gvatemala en það hlustaði enginn á hann... Hann reyndi að tala um tré en það hlustaði enginn á hann.. Hehe.. En þetta var ósköp næs. Valdi segist alltaf vera að fara til útlanda þegar hann fer yfir sundið sem er náttúrulega tæknilega alveg rétt....
Eftir kaffihúsaferðina þá röltum við Valdi bara Strikið og komum við í Magasín og HM en það þarf að kaupa buxur á kallinn þar sem hann hefur bætt eitthvað á sig síðan við komum.. Hann segir reyndar að það sé "þvottavélinni" að kenna en ég þekki þá afsökun einum of vel sjálf... En ég vaknaði á fimmtudagsmorgninum við tuðið í Valda "djöfullinn ég get ekki hneppt þessu maður... " Hann er nú ekki sá eini sem hefur bætt á sig.. málið er bara að hann má ekki gera grín að mér en ég má gera grín að honum.. (Ný regla sem ég bjó til ) (Asnaleg regla
segir Valdi)
VIð komum líka við á Hvids Vínstuge og hittum Hlyn og Viljhálm vin hans.. 'Eg kann alltaf jafn vel við mig á þessum bar því hann er Eldgamall og þarna heyrir maður mikið íslensku og þjónarnir eru alvöru þjónar sem eru uppáklæddir og þarna eru líka fín salerni... Það er líka viðkunnalegt að hafa teiknaða mynd af Íslendingum sem hafa stundað barinn fyrir ofan okkur á veggnum.
Á Strikinu fundum við hnífabúð með svona ekta fínum eldhúshnífum. Okkur hefur dreymt um það lengi að kaupa okkur svona alvöru sett þar sem Ikea hnífarnir hafa aldrei bitið á eitt eða neitt... Ég veit ekki alveg hvað ég hélt með verð á svona gripum kannski 10.000 kall fyrir nokkra hnífa en við fundum mjög fallegt og vandað sett með 5 hnífum og einum kjötskærum fyrir 53.000 kr.. SHIT... Við tókum bara bækling og ætlum að láta okkur dreyma um þetta í nokkur ár í viðbót....
Við fórum svo á Hard Rock og ég fékk með De Lux margarítu sem er með grand mariner í og einhverju fleira trumsi.. Vá hún var svo góð og maður fékk að hirða glasið sem ég reyndar gerði þar sem ég mun servera margarítur fyrir Dýrleifu og Lindu þegar þær kíkja í heimsókn og undir því yfirskini þá fékk ég mér aðra Margarítu.. Ég þarf náttúrulega allavega tvö glös.... En ég hefði nú betur kíkt á verðið á þessari DeLux Margarítu áður en ég pantaði tvær... Því það kom í ljós við nánari útreikning að hún var auðvitað FOKDÝR.. En fyrir tvær þá borgaði ég 3300 íslenskar krónur.. Úpps.. ég hefði nú betur bara keypt mér kristalsglös... (vá við nánari útreikning þá kostaði þetta 400 ketzales í Gvatemala en það eru hálf mánaðarlaun verkamanns.. wowwwww)
Valdi fór á sænskunámskeiðið sitt á fimmtudagskvöldið en hann var í fyrsta sinn að fara í erfiðari tíma. Honum líst vel á þetta og ætlar að halda áfram á þessu stigi... Hrein snilld..
Róleg helgi framundan með labbitúrum, lærdómi, lærdómi, lærdómi og aftur lærdómi...
Bestu kveður frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábært hjá ykkur að skella ykkur í utanlandsferð
Gakk vel í sænskunni Valdi, gott hjá þér að vingast við sænskuna
Gangi ykkur vel
Heyrumst
kv
HB
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 19:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.