Súperséní á heimilinu...

Dagurinn byrjaði brösuglega hjá mér en ég ætlaði bara EKKI að geta vaknað en ég varð að dröslast á fætur þar sem tölfræðin er mikilvægt fag sem ég verð að læra. Ég var mætt niður á Central vel fyrir níu og þá var óvenjulega mikið af fólki á stöðinni. Málið var að það hafði einhver rafmagnsstrengur farið í sundur frá Lundi og niður í Malmö svo að engin lest hafði farið frá stöðinni í langan tíma... Og hófst þá biðin langa... En allavega eftir 50 mínútur þá lagði lestin af stað smekkfull til Köben en ég var með sæti annars hefði ég sko farið í fýlu... Eitthvað sagði mér samt að ég ætti bara að stinga af heim en NEI.. ég skyldi hafa það í tölfræðina... Á Hovebane... þá var meira að segja lestin til Malmö opin beint fyrir framan mig og ég þurfti að taka á mínum stóra til að hoppa ekki beint úr einni lest í aðra og aftur heim... Og einbeittur brotaviljinn kom mér upp í strætó og í Universitetsparken og þá var ég orðin mjög sein að sjálfsögðu... Og viti menn þegar ég loksins fann skólastofuna þá var bekkurinn FARINN.. HORFINN á braut.... Guð má vita hvert þau fóru en ég fór í fýlu og fór heim.... Andsk.. afsakið orðbragðið.. Ég hefði nú bara betur snúið mér á hina hliðina og haldið áfram að sofa.. Ég er mjög spæld yfir að hafa misst af tölfræðinni því ég þarf virkilega á kennslunni að halda.... En svona fór það....

Þegar heim kom þá fór ég að yfirfara vistfræðiverkefni og Valdi var að skrifa ritgerðina sína. Við tókum einn labbitúr niður í bæ og svo var bara haldið áfram í skrifborðsvinnu....

Hins vegar hringdi allt í einu síminn hans Valda (sem hringir aldrei því við eigum enga vini...Tounge ) og þá var það kennarinn hans í sænskunámskeiðunum... Hann tók stöðupróf í síðasta tíma og kennarinn vildi HÆKKA HANN UM NOKKRA BEKKI!.... Minn gengur núna um ekkert smá montinn.... heldur að hann sé súperséní í sænsku......

Eftir viðbrenndan kvöldmat (Valdi eldaði) þá hélt tölvuvinnan áfram fram eftir kvöldi.

Bestu kveðjur frá Malmö 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Guðrún þú átt alla mína samúð í sambandi við skólann, það er nátturulega ekkert eins pirrandi og þegar dagar gufa upp í ekki neitt.

En ég ætlaði bara að benda á ljósan punkt í tilverunni afþví ég hef líka tekið eftir að veðrið er mjög grátt hér um slóðir. Sólin, þið vitið þetta gula, kringlótta ljós sem við sáum síðast á Íslandi, er búin að skína allavega í 2 tíma í dag.  jahú og ríba, ríba.

Bið að heilsa sænsku séníinu

Rakel (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband