5.2.2008 | 20:39
Hangikét á sprengidag..
Jæjja þetta var ágætis dagur. Ég missti ekki af lestinni og hún var á áætlun. Ég þurfti heldur ekki að taka strætó því ég var í tímum rétt hjá Nörreport.
Í dag var ég í fyrsta tímanum í Laver og Mosser (Fléttur og Mosar) þetta lítur bara vel út en ég held að kennararnir viti ekki alveg um hvað við erum að gera stóra verkefnið okkar. Við eigum að fara í einhvern þjóðgarð og gera eitthvað sem þeir gátu ekki alveg svarað. En ég hef ekki áhyggjur af því þar sem ég er alveg upptekin ennþá í Tropical Botany með verkefni og próf núna 25. feb. Dagarnir eru reyndar mjög langir þegar tímarnir eru frá 9-16 og sama námsefnið allan tímann.. Ég var alveg búin á því þegar ég kom heim. Ég var send heim með mosaræfil sem heimavinnu fyrir föstudaginn þar sem kennararnir verða ekki á staðnum. Ég er ansi hrædd um að ég sé ekki að fara á milli landa til að greina einn mosa.. Ég held líka að ég hafi drepið mosann á leiðinni heim... úpps...
Valdi var heima í dag að skrifa ritgerð, hann á að skila henni á morgun og ég held honum leiðist mikið í þessu verki. Sér til upplyftingar fór hann í langan hjólatúr um allan bæ í dag. Hér í Svíþjóð er nánast alltaf einhver ljúf veðurleysa upp á 3-6 stiga hita. Hins vegar er umhverfið allt mjög grátt hér, alltaf grátt og lítil tilbreyting... Það verður fínt þegar það fer að vora hér en við höfum séð vorviðbrögð á trjánum og krókusar eru farnir að spretta upp.
Þegar ég kom heim þá beið Valdi mín með Hangikét og uppstúf.. Ummmmmm..... Hann keypti þetta þegar hann var á landinu um daginn. Við borðuðum okkur til óbóta en það var vel þess virði. Já fyrst hann fékk ekki saltkét og baunir þá varð þetta bara að duga.
Ég eyddi kvöldinu í vistræðiverkefnin og líka í að lesa fyrir Tölfræðikúrsinn. Almáttugur ég er í tölfræði á morgun frá 10-16. ÉG DEY..........
Bestu kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.