Gvatemalískar hryðjuverkaflær

Síðustu dagar hafa nær alfarið farið í að yfirfara vistfræðiverkefni nemenda að heiman. En þetta er ljómandi gaman.

Valdi var í prófi á föstudaginn og gekk la... la... en hagfræðikúrsinn er að drepa hann...

Annars hefur helgin farið í rólegheit. Í gærkvöldi komu Anna María, Rakel og Guttarnir í mat og Valdi gerði snilldargóðan kjúklingarétt sem við fundum á netinu. Þetta var ljúf kvöldstund og alltaf gaman að fá gesti þar sem Íslendingarnir eru fáir hér í Malmö, allavega fáir sem við þekkjum, en þarna held ég að Íslendingavinahópurinn sé upp talinn.... Það verður næs þegar Lilja og Vaggi snúa aftur í mars.

Í vikunni fórum við Valdi á netið til að skoða kamínur en við fengum þá flugu í höfuðið að þær væru kannski ódýrari hérna úti en aðallega kannski flottari en mér finnst þær allar ljótar sem ég hef séð á netinu. Auk þess kosta þær um 200 þúsund krónur...  Við höfðum keyrt fram hjá kamínubúð hér í næstu götu og ákváðum í dag að labba þangað og gægjast á glugga. Og viti menn þar var ein lítil og sæt og bara alls ekki of ljót fyrir 27.000 íslenskar... Við þurfum að kanna þetta betur.   Við fórum sum sé í fínan göngutúr í Kirseberggarðinum, fórum þar hring eftir hring en ég er mjög hrifin af þessum garði.

Í gærkvöldi varð ég vör við að eitthvað væri að éta sig upp handlegginn á mér... Ég held ég hafi komið með allavega eina fló með mér frá Gvatemala.. Ég hélt ég hefði náð að losa mig við hana af hægrihandlegg en þá held ég áð hún sé byrjuð á þeim vinstri en þar náði hún þremur góðum bitum.. Valdi heldur að hann hafi kannski fengið eitt bit... En vonandi ekki..  Ég er búin að setja alla textílvöruna út á svalir og svo þarf ég að taka hana inn í smáskömmtum og setja í frystinn... Vonandi bara fer ekki að rigna...

Á morgun byrja ég í tölfræðikúrs við KU. Ég þarf að fara á nýjan stað og allt nýtt... Ég stressast alltaf upp við svona.. Auk þess sem tölfræði er bara ekki min sterka hlið.. En ljósi punkturinn er að tímarnir á mánudögum byrja ekki fyrr en klukkan 10.00 sem er dásamlegt.. Ég þarf ekki að taka lestina fyrr en 8.40 sem er lúxus....

Valdi byrjar svo annað kvöld á sænskunámskeiði hér niðri í Malmö. Hann mætir tvö kvöld í viku í átta vikur.. Hrein snilld...

Bestu kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband