Íslandsferð

Sælt veri fólkið. 

Eins og fram kom í færslunni hennar Guðrúnar þá fór ég til Íslands um helgina.

  Þessi Íslandsferð kom nú ekki til af góðu ég fór til að vera við jarðaförina hennar Siggu vinkonu minnar og eiginkonu eins besta vinar míns hans Jónasar, en hún lést þann 14. janúar eftir baráttu við krabbamein.  Útförin fór fram föstudaginn 25.Janúar frá Selfoss kirkju afskaplega falleg og tilfinningaþrungin athöft.  Þarna kvöddum við mikla kjarna konu sem að verður sárt saknað af okkur sem að þekktum hana.

Veðrið lék nú ekki við mig í þessari ferð en við þurftum tvær atrennur til að lenda á fimmtudagskvöldið vegna þess að það var einhver sópur fastur á flugbrautinni en þegar við vorum lent fór ég og náði í jarisinn sem ég hafði tekið á bílaleigu og böðlaðist á honum til Reykjavíkur í brjáluðum skafbil og þæfingi. morguninn eftir var enn verra veður og allt ófært ekkert flug og það leit ekki vel út með að komast austur í jarðaförina, bæði þrengslin og heiðin lokuð.  Jarðaförinni var frestað til 3 og í millitíðinni voru þrengslin opnuð, ég fékk far yfir með Eddu Björgvins, Önnu Margréti og Steinu á jeppling sem Edda var með frá dóttur sinni.  Ferðin gekk vel og komum við á sekúndunni þegar athöfnin var að byrja. Á laugardeginum var skaplegt veður en spáin fyrir kvöldið slæm.  Ég brunaði austur fyrir fjall náði í börnin og fór svo að heimsækja Höllu systur í sveitina þar fengum við pönnsur og kjötsúpu.  þegar ég var svo búinn að skila börnunum þá ætlaði ég að kíkja á Jónas en hann var þá í bænum. Ég skellti mér í kaffi til Elvars og Helmu í staðinn. dreif mig svo yfir heiðina til baka því að það var að skella á þetta skíta veður.  veðrið hélt svo bara áfram að versna og vakti mig nokkrum sinnum um nóttina þegar það buldi á rúðunni í gamla herberginu mínu.  Morguninn eftir var enn bálhvasst og ég átti eftir að fara á Jaris út á Keflavíkur flugvöll til að taka flug heim kl 17.  það var mjög hvasst á reykjanes brautinni og mér fannst vindurinn bara aukast eftir því sem nær dró flugstöðinni. þegar ég svo skilaði bílnum sögðu konurnar í bílaleigunni að það hefði fokið 40 feta gámur þarna á svæðinu í hádeginu enda vindur farið í um 6o metra á sekúndu í kviðum.  Þegar ég hafði lokið við að versla nesti í Íslensku búðinni Hangiket, hákarl og brennivín,  þá settist ég við barinn og fékk mér einn víking haldið þið að Tommy Lee hafi ekki allt í einu staðið við hliðina á mér að kaupa sér bjór og samlokur á barnum. Maður er bara orðin frægur W00t

En heim komst ég svo um klukkan 23:00 í gærkvöldi fullur af kvefi en ánægður með þessa Vetrar ferð ég fékk þó vetur.

þetta er orðið nóg í bili ég á að vera lesa einhverja hagfræði núna en er ekki alveg að nenna því.

Malmö kveðjur

Valdi

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband