28.1.2008 | 05:33
Á leið heim í fyrramálið
Í dag erum við bara búnar að hanga á þessu lúxushóteli og undirbúa brottför sem er eldsnemma í fyrramálið. Ég þurfti að kaupa mér nýja ferðatösku því ég hef keypt eitthvað "aðeins" af dóti og ég þurfti líka að versla mér bakpoka þar sem það kom STÓRT gat á minn. En svona hlutir kosta slikk hér í Mollinu fyrir neðan hótelið svo þetta var nú ekki stórmál.
Við höfum ekki farið út fyrir hótelið í dag enda er búið að hræða okkur svo gríðarlega með hvað Gvatemala City er hættuleg að við bara höngum inni. Ég var bara í tölvustússi og niðurpökkun.
Ég setti inn tvö ný albúm sem heita Maya hofin í Tikal og Bátsferð. Ég lofa svo að síðustu albúmin fara inn á þriðjudaginn þegar ég kem heim.
Við tökum hótelskutluna kl. 4:30 í fyrramálið og fyrsta stopp er Huston í Texas og svo Newark fyrir utan New York en lengsta flugið er Newark-Köben og þá ætla ég að reyna að sofa. Í Kaupmannahöfn lendum við svo 7:30 á þriðjudagsmorgun... Púff.. það er langt ferðalag fyrir höndum.
Ég talaði mikið við Valda á msn í kvöld en hann var að koma frá Íslandi en hann þurfti að fara í jarðarför. Ég verð bara að segja það að tilhlökkunin er orðin MIKIL að koma til Svíþjóðar og knúsa kallinn minn... En ég er búin að sakna hans mikið í þessar þrjár vikur..
Jæjja best að fara að sofa þar sem vekjaraklukkan er stillt á 3:55.
Bestu kveðjur frá Gvatemala City
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.