Gvatemala City

Jæjja þá erum við komin aftur til Gvatemala City. Þetta er mest óspennandi borg í heimin en ég ætla líka ekki út af hótelinu þar til á mánudag þegar við förum í flug heim, nema reyndar smá á túristamarkaðinn í fyrramálið til að klára smá innkaup.

Síðustu dagar hafa verið ágætir á hallærislegu túristahóteli (Green Bay) með fría drykki og bíllaus. Ég fór snemma að sofa bæði kvöldin enda úrvinda eftir langt og strangt ferðalag. Hótelið var frekar væmið og ég náði heilum klukkutíma við sundlaugina og þá var ég búin að fá nóg. Þarna var hópur af Bandaríkjamönnum með tilheyrandi hávaða og læti. Frekar pirrandi. Í gær þá fórum við í nærliggjandi þjóðgarð og planið var að labba upp einhverjar þverhníptar brekkur í sex klukkutíma. Ég var nú ekki alveg að falla fyrir því enda máttum við verða eftir hjá fallegum hyl og fossi ef við nenntum ekki í gönguna. Ég notaði skynsemina og sleppti göngunni og synti í hylnum í staðin með Dýrleifu og Linda sat á bakkanum. Þetta var yndislegt og svo gengum við heim á hótel.

Í dag föstudag var svo síðasti dagur ferðarinnar formlega. Við lögðum af stað snemma í morgun á leigðri rútu en upphafleg ætluðu kennararnir að leigja rútu fyrir hádegið og taka svo public transport með allan farangurinn til Gvatemala City og svo Taxa á hótelið.. Glætan.. Ég þvertók fyrir svoleiðis rugl svo við fengum rútu alla leið. Enda var heimleiðin mjög skemmtileg og mikið að sjá.

Upp úr hádegi þá keyrðum við Hlyn og helminginn af hópnum að landamærum Hondúras og slepptum þeim út þar en þau ætla að vera nokkra daga þar fyrir heimferð. Hinn hluti hópsins hélt áfram í átt að Gvatemala City með mörgum stoppum en við sáum bananaverksmiðju á leiðinni en það var mjög áhugavert. Við sáum líka mangóakur, Papaya akur, vatnsmelónuakur og ýmislegt áhugavert. Við komum hins vegar seint á Hótelið og ég og Linda nentum ekki út til að borða og ákváðum að fá okkur bara pizzu á hótelinu. Áður en það gerðist þá ákváðum við að fá okkur afgang af rauðvíni sem við áttum en til þess að það gæti gerst þá þurftum við svissneska vasahnífinn minn með tappatogaranum svo ég tók lyftuna upp á 7. hæð til að ná í hann. Á leiðinni út úr herberginu fékk ég þá snilldar hugmynd að hlaupa bara stigana enda Dýrleif og Linda á 6. hæð beint fyrir neðan mig. Ég skelli mér út á stigaganginn sem var steyptur og hráslagalegur og viti menn ég lokast þar inni. Ég kemst ekki aftur inn á hótelganginn. Ég banka og banka og enginn heyrði.  Ég fer þá niður á 6. hæð og banka þar því hurðinn hennar Lindu var þar við hliðna.. Og ekkert gerist.. Ég enda með að hlaupa niður á jarðhæð og taka svo lyftuna upp.. Þá hafði Linda heyrt bankið en ekkert skilið hvað var í gangi.. Þetta var bráðfyndið panikk að hlaupa þarna um eins og geðsjúklingur með tappatogarann... Ég hélt ég yrði ekki eldri.  En pizzurnar voru góðar og netsambandið sleppur skulum við segja. Hér verðum við fram á mánudag og ég ætla að reyna að nota tímann til að vinna í tölvunni ef kennarinn gefur mér frið en hann er endalaust að tuða um eitthvað sem þarf að gera.. NÁMSKEIÐIÐ ER BÚIÐ....

Eitt myndaalbúm fór inn í dag en það er albúmið um Tebúskapinn. Fleiri koma svo á morgun og vonandi næ ég að setja þetta allt inn áður en ég fer heim á mánudaginn.

Bestu kveðjur frá Gvatemala City


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Hæ.

Þið hljótið að vera fegin að þessi ævintýraferð sé að verða búin.  Þú þarft nú að útskýra bananaverksmiðjuna betur

Hér heima snjóar og snjóar og aumingja Tommy Lee þurfti að chilla á Eigilsstöðum því það var ekki hægt að lenda í Keflavík. 

Gerður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 18:40

2 identicon

Bananaverksmiðja.. hehe.. já ég er sko að meina pökkunarstöð fyrir banana, Del Monde...

Ég vorkenni ekki Tommy Lee hann ætti bara að nærast betur þá hefði hann eitthvað kjöt á beinunum til að díla við íslenskt veðurfar... .

Kveðjur frá Gvatemala City

Guðrún B

Guðrún Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband