21.1.2008 | 05:43
Maya hofin í Tikal
Ég tók auðvitað aftur kast á klóstinu í morgun frá 7-9 en eftir það var ég góð með aðstoð Imodium. Heilsan er samt frekar tæp og auk þess er alger ofþreyta komin í mig og hópinn. Við vorum á fínu hóteli sl. nótt og ég svaf nokkuð vel. Keyrslan á hótelið sem við erum á núna í Tikal var stutt og við byrjuðum daginn á að henda inn farangrinum og svo fórum við í Yaxjá garðinn að skoða Maya borg en það eru þessir stein píramídar sem eru alveg klikkað flottir. Það var talsverð rigning þegar við komum en svo stytti upp og veðrið var alveg skaplegt og ekki of heitt. Maya píramídarnir rísa upp úr skóginum á undarlegan og seyðandi hátt. Þetta var Maya borg síðan 600 ár fyrir krist. Við sáum fótboltavöll Mayanna og aðsetur prestanna og konunganna. Við röltum bara um og alltaf birtust nýjar byggingar í skóginum. Vá þetta var skrýtið. Mayarnir dóu svo út um 1100 eftir krist aðallega vegna hungurs en þeim hafði fjölgað mjög og réðu ekki við að framfleyta sér. Ofan á seyðandi umhverfið í skóginum þá glumdu öskur "Howling monkey" yfir allt en þetta eru pínulitlir apar sem öskra á við tíu ljón og það er hrikalega krípí að hlusta á þá... Þetta setti enn skrýtnari stemningu á heimsóknina.. Seinna sáum við svo lítinn apa en það var ekki þessi Howling monkey.
Á leiðinni heim á hótel þá var stoppað í "hádegismat" (kl. var að verða fjögur). Ég hafði enga matarlyst en fór á markaði á meðan. Þar mátti aftur finna "þjóðargersemar" til sölu. Ég keypti nú einn lítinn haus fyrir slikk enda vantaði mig þann þriðja í safnið þar sem sölukonan á síðasta stað sveik mig um einn haus. Axel kennari heldur enn að hann hafi keypt þjóðargersemar Gvatemalabúa. En ég get fullyrt að þetta eru líklega falsaðar vörur sem eru látnar líta út fyrir að vera gamlar eða 100 ára gamalt drasl sem er verðlaust því það er svo mikið til af þessu. Ég held ég hafi náð að róa kennarann í dag þegar við sáum tonn af þessu dóti í hótellobbíinu.. Ég keypti líka eitthvað meira leirdót og drasl og líka eina hauskúpu af einhverju útdauðu dádýri.. en nú er ég að ná tökum á prúttinu hér svo þetta fer að verða stuð.. (Ok Valdi ég skal reyna að hemja mig....)
Hótelið sem við erum á núna er fínt líka en nettengingin er hæg. Á morgun þá förum við að skoða stærstu Maya píramídana í Parque National Tikal. Vá eins og þessir í dag væru ekki nógu stórir...
Ég náði að setja inn tvö ný albúm þrátt fyrir hæga nettengingu en þau heita. Háfjallavegir frá helvíti og Háfjallaferð.
Jæjja best að koma sér í bólið. Annars er Howling monkey að öskra hér fyrir utan og það er rosalega krípí.. Þetta eru eins og 10 ljón.. En gott að vita að þetta er bara lítill api annars hefði ég ekki þorað að hlaupa yfir sundlaugasvæðið í herbergið mitt...
Bestu kveðjur frá Gvatemala
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.