17.1.2008 | 05:50
Háfjallaveiki og lofthræðsla
Jæjja fyrst ég lifði þennan dag af þá get ég allt. Við fórum upp til fjalla í dag og ég get varla lýst þessum vegum. Þeir voru HRÆÐILEGIR. Snarbrattar hlíðar og einbreiðir vegir með vörubílum og rútum þvers og kruss.. Púff.. Umferðarmenningin er líka skelfileg hér en í gær taldi ég 26 minningarkrossa/altari við veginn bara mín megin á 2ja tíma leið.
En allavega þá var gærdagurinn ekki merkilegur en við vorum bara að færa okkur milli staða. Hápunktur dagsins var að hlýða á fyrirlestur hjá konu sem stjórnaði hópi kvenna sem ræktuðu jurtir fyrir jurtasjampó, spennandi verkefni en ég hélt ég yrði ekki eldri þegar Svend-Eric, kennarinn okkar og spænskutúlkurinn, kynnti konuna grafalvarlegur sem Lesbía Del Torres.. Ó my god.. ég rétt náði að bíta í tunguna á mér en þá þurfti hann að nefna hana aftur "Lesbía segir... " og ég átti svo bátt með mig að rifna ekki úr hlátri, sérstaklega þegar ég sá að Svend Eric stóð þarna uppi og eiginlega var að springa sjálfur. Aumingja konan, ég veit ekki hvort hún viti hvað nafnið hennar þýðir... En hún kom vel fyrir og var flott kona.
Við erum núna í þorpinu Hue Hue Temango. Áður en við lögðum af stað upp í fjallahéröðin í dag þá fengum við rosalegar leiðbeiningar um hvernig við ættum að hegða okkur. TD. Alls ekki taka myndir af börnum en japanskur ferðamaður var drepinn fyrir það því fólkið hélt hann ætlaði að stela barninu. Ekki tala um námur eða silfurnámur eða gullnámur, ekki segjast vera jarðfræðingar... Svo var þetta ekki útskýrt nánar..
Í dag fórum við sum sé stórhættulegar leiðir upp í 3500 metra og ég upplifði háfjallaveiki. Vá hvað það er skrýtið. Við vorum öll Íslendingarnir skrýtnir í hausnum og mig svimaði og ég datt einu sinni og ég gat varla gengið 10 metra án þess að anda rosalega hratt.. Þetta var rosalega skrýtið.. En það var frábært að sjá hvernig gróðurinn breyttist eftir því sem ofar dró og efst þá var gróðurinn ekki ósvipaður og á Íslandi.
Á leiðinni heim fórum við smá krók til að sjá eina trjátegund og ég ætla ekki að lýsa vegunum þar.. Jesús.. ég hélt í alvöru að þetta væri mitt síðasta.. Og á leiðinni niður þá sáum við fullt af krossum og skreytingum á stórhættulegum stað fyrir ofan gil og þar var fullt af fólki. Málið var að fyrir stuttu þá fór rúta þarna fram af og 40 dóu. Já þetta var nú ekki til að bæta andlega ástand mitt í þessari ferð..
Þarna á leiðinni í þorpunum sáum við alvöru Maya Indíána, smávaxna í þjóðlegum búningum, það var flott. Þarna er hins vegar mikil fátækt og við lentum í betlandi börnum í fyrsta sinn. Því miður eru engar myndir af Maya fólkinu í búningunum því við þorðum varla að draga upp myndavélina nema að það væri tré eða planta fyrir framan.
Annars erum við á ekki svo merkilegu hóteli þessa stundina og það varð atvik með könguló og rúmið mitt í gær og líka maura og annað rúmið hjá Dýrleifu og Lindu. Arrgg.... En heilsan er enn góð í hópnum. Ein stelpa fékk gubbuna um daginn og Linda var smá slöpp í maga í dag.. En hresstist þegar leið á daginn. Háfjallaveikin fór illa í okkur Hlyn en annars hafa bara verið stinnar og góðar hægðir á heimilinu.. Já þegar maður er í svona "langt í burtu landi" þá er þetta umræðuefnið yfir morgunmatnum.....
Þrjú ný albúm: Skrautjurtabúgarður í Gvatemala, Frábær dagur við vatnið og milliferðadagur. Ég set vonandi inn albúm á morgun fyrir Háfjallaveikina. En það er orðið svo kalt hér í lobbýinu á hótelinu og vopnaði vörðurinn er farinn að horfa talsvert á mig og ég veit ekki af hverju löggan kom hér áðan... Svo ég held ég drífi mig í bólið... Enn og aftur takk fyrir kommentin við myndirnar...
Bestu kveðjur frá Gvatemala
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Halló. Einhver var að segja að Jónína Bjartmarz og family væri flutt þarna út til Gvatemala.....Vona að þau hafi fundið sig og kunni vel við alla. Skilið kveðju ef þið rekist á hana.
Siggi Þ (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 06:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.