Nokkrir dagar í Gvatemala

Ég er ansi hrædd um að þessi færsla verði hraðsoðin því það er verið að henda mér út af barnum þar sem nettengingin er..

Síðast fréttist til mín þar sem ég var að fara í Primavera forest station. Það var frekar svona "Röff" gisting í heimahúsi og allt frekar ógeðslegt. En við höfðum það af. Hins vegar var sundlaug úti í garði og það var næs. Við fórum í fína gönguferð og fræddumst um kaffirækt og hvað var gert þarna á búinu en þeir eru með allskonar búskap meðal annars gúmmí framleiðslu sem er snilld að sjá. Gúmmítrén fara fyrst að virka fyrir alvöru þegar þau eru 40 ára svo það þarf þolinmæði við þetta. Það er skorið í trén og kvít kvoðan kemur út og safnast í skál, þetta er gert á hverjum degi. Það var áhugavert að vera þarna þó það tæki svolítið á taugarnar.

Eftir þetta fórum við í lítið þorp við vatnið Antilia (held ég) Þetta er túristaþorp svo við erum á fínu hóteli. Eitthvað hefur þó ruglast með herbergjaskipanina og ég er með Dýrleif og Lindu núna. En allavega á leiðinni frá Primavera forest station þá fórum við á Ornamental búgarð þar sem voru ræktuð skrautblóm. Það var æðislegt að ganga þar um og sjá Jukkurnar (Yukka Elefantus...) og fleiri plöntur vaxa í haugum.. Við sáum líka plöntuna sem Axel prófessor er sérfræðingur í.. hún er rauð og stór.. (vonandi koma myndir seinna). Ég held ég hafi komist í tæri við snák þegar ég steig út fyrir göngustíginn til að taka mynd af blómi og eitthvað skreið í burtu í sinunni.. Shitt.. mér kross brá..

Í dag þá fórum við á bát yfir vatnið í æðislega krúttlegt þorp þar sem konurnar jurtalita bómull til að vefa úr og við fræddumst um það og ég fékk að prófa að vefa.. (myndir koma seinna). Vá þetta var svo spennandi og gaman að sjá. Hildur við þurfum að fara þarna á námskeið seinna en konurnar eru með þriggja daga námskeið. Við þurfum bara að læra spænsku fyrst... Þorpið var æði, mjög svona upphaflegt en samt með slæðingi af túristum. Ég keypti einn borðrenning af konunum og hann var allt of ódýr. Síðan skoðuðum við bæ með lækningajurtum og sápum. Því miður hafði bandarísk ung kona komið til þeirra í einhvern tíma og var búin að poppa upp allt dæmið, hækka verð og gerði þetta svona sölulegra og þar með túristalegra og óáhugaverðara. En samt gaman.  Eftir hádegismat var siglt á annan stað við vatnið til að ganga á vígalegt eldfjall. Eldfjöllin hérna eru öll svona alveg eins og í teiknimyndunum og líta út fyrir að gera spúið eldi hvenær sem er. Gengið var upp í hálfa hlíðina á 3000 metra fjallinu og útsýnið var skoðað. Ég fór reyndar ekki alla leið þar sem ég var mjög eftir mig eftir erfiða göngu á Skógarbúgarðinum. Mig grunaði að við sæjum bara aðeins meira útsýni og fleiri kaffiplöntur og það var víst rétt hjá mér.

Eftir þetta þá var klukkan orðin ansi margt en það var samt komið við á stærsta túristamarkaði í Gvatemala annars staðar við vatnið. En viti menn hann var að loka.. Alltaf upplifi ég þessa martröð að allt er að loka.. LOKA... Panikk.. Nei nei.. mér var alveg sama.. Ég keypti einhverja vefnaðarvöru sem var fín en ég hafði verið að skoða með Axel kennara svona leirdót sem áttu að vera fornmunir og ég náttúrulega trúði því ekki. Konurnar vildu fá mikinn pening fyrir svo ég gekk í burtu. En síðar kemur Axel til mín og segir að þetta hafi líklega verið í alvöru ALVÖRU fornmunir frá Maya tímanum. Þá vaknaði nú áhugi minn en hann í raun bannaði mér að kaupa þetta. Ég sagði EN en en en en það kemur bara annar túristi og kaupir þetta. NEi þetta á heima á safni hér í landinu sagði hann og auðvitað er ég sammála því.. En ég freistaðist bara svo og konan sem var að selja þetta elti mig í bátinn og án þess að Axel sæi tókst mér með aðstoð Lindu að prútta þetta úr 1200 í 300 Ketzales og þessu var hent um borð í bátinn og við sigldum í burtu með det samme.. Held að kennarinn hafi ekki tekið eftir þessu. En hins vegar sat ég uppi með alveg svakalegan móral.. En ég er 99% viss um að þetta sé ekki alvöru dót.. Ég þekki þetta svindl trikk frá Afríku... En allavega þá fékk ég líka móral yfir að hafa svikið kennarann og keypt þetta.. En viti menn... Haldiði að Axel hafi ekki komið til mín í kvöld frekar kleinulegur og viðurkennt að hann hafi keypt svona fornmun.. þrátt fyrir að hafa eiginlega bannað mér að kaupa þetta... Djísus.. en ég var ósköp fegin að ég gat þá játað fyrir honum brot mitt. Og við ákváðum að þetta yrði bara okkar leyndarmál.. Humm sem er núna komið á netið.. Hehe..

Annars tók við nýr forseti í dag hér í Gvatemala og alls staðar hljómaði þjóðsöngurinn og einhver forsetaútsending er blöstuð hér á barnum.

Ferðalagið er svo strembið og lítið um almennilega nettengingu að ég þori ekki að lofa myndum á næstunni.. En vonandi. Ég hins vegar kláraði að setja inn myndir  í albúmið frá Antigua - Krúttlegasti bær í heimi... og kannski get ég sett inn nokkrar aðrar myndir í annað albúm ef mér verður ekki hent út.. Barþjónninn er búinn að slökkva alls staðar..

Allavega takk fyrir kommentin og öll kommentin við Myndirnar.. Valdi minn ... Vonandi næ ég þér á MSN bráðum en núna er td. klukkan hjá þér held ég 4.33...

Bestu kveðjur frá Gvatemala


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband