11.1.2008 | 14:20
Antigua
Við erum búin að vera í Antigua sem er gamall bær, fyrrum höfuðborg Gvatemala, núna í tvo daga. Borgin er svo sæt og krúttleg. Allar göturnar beinar og auðvelt að rata. Hér eru yndislega krúttlegar götur og krúttlegir markaðir. Í gærmorgun fórum við á grænmetismarkaðinn hér sem var algjört æði, svona ekta local markaður eins og ég verslaði á í Gambíu. Ótrúlegt hvað það er margt eins hér enda eru bæði löndin við miðbaug. Ég hef ekkert fengið tíma samt til að rölta meira um því miður en í gær fórum við í langan bíltúr út á ströndina og sigldum þar um mangrove skóga. Það var rosalega áhugavert. Þar voru hvítir hegrar á flugi og allskonar skrýtnir fuglar og dýr. Td. Fiskar sem voru alltaf að kíkja upp úr vatninu og syntu um með augun upp úr.
Ökuferðin var svolítið svakaleg. Þetta eru fjallvegir og mikið um beygjur og bílstjórinn tekur fram úr alveg hægri og vinstri. Við stoppuðum svo á sykurplantekru sem var gaman að sjá og líka á tóbaksplantekru en það var gaman fyrir mig að sjá Nicotiana tabacum í ræktun þar sem ég var að leggja lokahönd á ritgerð um Nicotiana. Þetta er svo fljótvaxta jurt að það tekur 3 mánuði að fá uppskeru hjá þeim.
Þegar á ströndina kom þá fóru sumir í sjóinn en ég var að mynda, bæði fyrir mig og á cameruna hans Hlyns.
Þegar heim kom þá vorum við alveg úrvinda eftir langan dag og fórum bara á hótel resturantinn og fengum okkur mat og margarítur.. Í dag ætlum við að skoða kaffiplantekru og hlýða á fyrirlestur um grasnytjar í Gvatemala. Síðan förum við í skógarrannsóknarstöð og verðum þar í tvo daga og ég efast um að það sé netasamband þar en aðstaðan er víst svolítið hrá og sumir þurfa að sofa á gólfinu. PANT EKKI ÉG.....
Ég verð að setja inn myndir seinna því netsambandið er svo slow hérna á hótelinu
Bestu kveðjur frá Gvatemala
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæhæ, gaman að heyra af ykkur þarna úti Gvatemala. Greinilega skemmtilegt ævintýri. Bið að heilsa fólkinu
María Guðbjörg (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.