8.1.2008 | 06:25
Gvatemala City
Jæjja þá er fyrsti dagurinn í ferðinni að kvöldi kominn. Við fengum að sofa út svo langt sem það náði þegar maður er alveg ruglaður í tímabeltum en við vöknuðum um ellefu og röltum okkur niður í Mollið til að fá okkur að borða og skipta peningum. Mollið er mjög bandarískt og á mörgum hæðum í kjallaranum og þegar kom að hádegisverði þá mátti velja um Mc Donalds, Pizza ut, Taco Bell og fleira AMERÍSKT...
Svo klukkan eitt þá vorum við mætt í lobbýið og þá seinkaði Sven Erik og Axel og þá biðum við klukkan tvö og svo seinkaði þeim aftur og þá var það þrjú.. Ég þoli ekki svona vesen.. Fyrsti dagurinn í nýju landi og allir spenntir að skoða sig um og við sitjum föst í hótel lobbýinu.. En allavega loksins komu þeir og við lögðum af stað í blómaskoðun út á umferðareyjar.. Ó já.. en það fyndna er að ég sá fullt af spennandi tegundum og þetta var mjög fróðlegt.. Svo fórum við í það sem við héldum að væri Botanical Gardens en var svo bara plöntusala og líka mjög fróðleg þar sem skiltin voru mjög góð með allskonar upplýsingum ásamt verði og ég lærði líka mikið þar.
Síðan fórum við í súpermarket og versluðum vatn og fleiri nauðsynjar en þetta er svo amerískt þjóðfélag að þarna fékkst alkaseltzer og tylenol og allt svona amerískt. Ég hafði virkilega gaman af því að fara í Gvatemalískt Hagkaup en sumt var skrýtið og sumt ekki...
Á leiðinni heim þá tók ég eftir almenningssamgöngunum sem eru rútur sem eru líklega einkareknar og mjög skrautlegar en menn verða víst hér að keppa í skrautleika og þægindum því það er bara keyrt um eins og í Gambíu forðum daga og öskrað nafnið á borginni eða staðnum sem verið er að fara til og smalað saman fólki..
Síðan fórum við upp á hótel og flestir í hópnum fóru á einhvern veitingastað í nágrenninu en ég og Dýrleif og Linda fórum á veitingastað á hótelinu því við vorum þreyttar og vildum ekki fara langt í burtu...
Annarst leist mér vel á Gvatemala það sem ég sá og loftslagið er ljúft..
Bestu kveðjur frá Gvatemala city
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ Hæ Guðrún.
Flott hótel, það er meiriháttar spennandi að fá að fylgjast með ferðinni á blogginu, héðan er allt gott að frétta, engin óveður ennþá en kalt. Á morgun bíður mín langur skóladagur og svo er allt að verða vitlaust á saumastofunni vegna útsalanna. Njóttu ferðarinnar. Láttu mig vita hvort þú hafir náð í Ólaf, hnappur@internet.is einnig máttu mig vita á hvaða netfang ég get skrifað þér þarna til Gvatemala.
Kveðja Gerður.
Gerður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 20:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.