Komin til Gvatemala eftir LANGT ferðalag..

Jæjja þá erum við komin til Gvatemala eftir óendanlega langt ferðalag. Ég er svo þreytt að ég held ég sé að deyja.. En við Hlynur erum svo spennt að við tímum ekki að fara að sofa svo við pöntuðum bjór í roomservice ásamt vatni og erum bara að haugast á þessu fína lúxushóteli sem við erum á. http://www.grandtikalfutura.com.gt/.

Ferðalagið var svakalega langt. Ég var svo stressuð að ég náði engum svefni nóttina fyrir brottför þannig að þegar ég var mætt á Kastrup klukkan sex á sunnudags morgni þá hafði ég þá þegar verið vakandi í 18 klst.  Fyrsta flugið var langt eða átta og hálfur tími frá Kastrup til Newark og svo var það Huston í Texas og loks Gvatemala city. Alls vorum við í loftinu í 14 klst og 10 mín. En ferðalagið í heild sinni frá mætingu á Kastrup og þar til við komum á hótelið var alls: 27 klst og því reiknast mér til að ég sé búin að vera vakandi í 45 klst... Það sem bjargaði okkur í fyrsta langa fluginu var að það var sjónvarpsskermur á bakinu á hverjum stól og maður valdi sjálfur efni og ég horfði á eina bíómynd og nokkra CSI þætti.. Hrein snild og svo var ég með eina bók eftir Arnald Indriðason.

Þegar við komum á hótelið þá kom í ljós að þetta er snilldar lúxus hótel og við Hlynur erum stórhrifin af herberginu okkar enda erum við með sitt hvort hjónarúmið og þetta er allt hið flottasta. Ég er hins vegar búin að liggja með tær upp í loft þar sem ökklarnir á mér eru eins og á fíl vegna bjúgs eftir þessa löngu flugvélasetu.

Jæjja best að koma sér í bólið þar sem það bíður okkar spennandi dagur á morgun. Við fáum að sofa út til að ná úr okkur flugþreytunni og svo skoðum við Háskólann í Gvatemala City. Kannski næ ég að setja inn myndir annað kvöld..

Bestu kveðjur frá Gvatemala City


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Hæ.

 Gaman að sjá að þú ert komin heil til Gvatemala, þetta hljómar allt mjög spennandi.  Það er maður sem er að hringja í mig og Hildi til að reyna að ná í þig.  Hann hefur hvorki náð í þig í síma né e-meili?  Hann vill að þú hringir í sig, Ólafur gsm. 698-7533  / hs 554-7533 hann er búinn að reyna í svo langan tíma og gefst ekki upp.  Endilega hringdu í hann, þetta er eitthvað út af starfi.

Ég fann netfangið hans, sogumidlun@mmedia.is 

www.akademia.is/sogumidlun

Bestu kveðjur frá Íslandi, Gerður.

Gerður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 22:40

2 Smámynd: Eyjólfur Ingvi Bjarnason

Kvarta yfir 14 tíma flugi, mér telst til ad ég verdi í loftinu í naerri 30 klst. á minni heimferd fra kivilandi og ferdalagi i heild taka milli 50-60 klst. svo 14 tímar er ekki neitt.

Eyjólfur Ingvi Bjarnason, 14.1.2008 kl. 07:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband