Ísland og Gvatemala á morgun

Jæjja þá er jólafríið búið og krakkarnir eru á leið heim á morgun. Það er búið að pakka og í kvöld var hátíðarkvöldverður með svínasteik og sykruðum kartöflum. Í dag fóru Valdi og krakkarnir upp í Lund til að spóka sig um en þá var svo mikil hálka að það var ekki stætt svo þau drifu sig bara heim.. Ég var hins vegar hérna heima í panikki að ganga frá síðustu stundu reddingum fyrir brottför í fyrramálið. Eins og í fyrra þá sé ég um heimavinnuna í vistfræðinni en þá voru um 35 nemar en núna eru þeir hátt í 90... Ég var að klára að búa til verkefni fyrir þá og setja þetta allt inn á skoli.is og setja niður reglur fyrir verkefnin eða leiðbeiningar.. Núna er ég í panikki að klára að pakka. Ég þurfti að spretta einu hálsmáli af skyrtu sem ég var að kaupa og sauma svo sjálf saman... GERÐUR.. ÞETTA ER ÞITT VERK... Heheh..  En ég held þetta líti bara vel út hjá mér.. Setti líka teygju í einar buxur og annað smálegt.

Það verður áfall fyrir Valda annað kvöld þegar krakkarnir verða farnir heim til Íslands og ég verð farin til Gvatemala og hann bara einn í slotinu.... Hann fer fyrst með mig um fimm leytið út á Central station og hendir mér út þar, svo nokkrum tímum seinna fer hann með börnin alla leið á Kastrup og svo einhverjum tímum eftir það þá fer hann líklega og sækir Rakel og guttana... Svo þetta verður flugvallardagurinn mikli hjá Valda.

Jæjja nú verð ég að klára að pakka og reyna að fá 2ja tíma svefn áður en ég fer í sólarhrings ferðalag.. En við fljúgum 9:15 til Newark í USA og þaðan til Huston og svo þaðan til Gvatemala City..

Ég skal vera dugleg að setja inn færslur eftir því sem netsamband finnst á hótelunum... Og Valdi er búinn að lofa að setja inn færslur frá Malmö..

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Óska ykkur góðrar ferðar öllum saman, já það verður aumt í kotinu hjá Valda á meðan þú ert í burtu Guðrún.  Hann ætti að hafa tíma til að stunda námið vel á meðan.  Eins og stóð til þá stefndi ég á að koma út um næstu mánaðarmót en það verður ekkert úr því, þar sem að ég er að fara á vegum vinnunnar til þýskalands í vikunni á undan.  Kannski  bara seinna hver veit.  Vona að þið hafið haft ánægjulegar stundir með krökkunum  kveðja að sinni Steinunn

Steinunn (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 15:13

2 Smámynd: Guðbjörg Guðmundsdóttir

góða ferð þó þú sjáir þessa færslu líklega ekki fyrr en þú kemur aftur til baka en ég dauð öfunda ykkur af því að vera fara þetta. jú jú Valdi minn þetta verður bara fljótt að líða ;-)

kveðja úr blautum snjó á norður hjara. Guðbjörg

Guðbjörg Guðmundsdóttir, 6.1.2008 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband