4.1.2008 | 13:18
Tívolí Lokað....
Eftir góðan letidag á nýársdag með tærnar upp í loft þá var farið í Malmö safnið en það inniheldur mörg söfn m.a. kastalann, tækni- og sjóminjasafn með kafbát og margt fleira. Í þetta sinn þá var kafbáturinn skoðaður og tækni- safnið ásamt einskonar experimentaríum þar sem börnin geta spreytt sig á ýmsum eðlisfræðitilraunum.
Í gær þá var loksins haldið inn í Danaveldi þrátt fyrir skítakulda og rok en þetta er fyrsta veðrið sem kalla mætti vetrarveður hér í Malmö. Ég þurfti að fara í skólann að stússast út af Gvatemala og skila bókum á bókasafnið á meðan Valdi og börnin strolluðu Strikið. Krökkunum tókst að versla meiri föt og líka nokkur plaöggöt. Þegar ég var loksins búin að hlaupa alla leið milli háskólanna minna (KVL og KU) og svo þaðan niður á Kongens Nytorv þá bjallaði ég í Valda og börnin og viti menn þau voru 3 metrum frá mér við enda Striksins.. Þá fengum við okkur kaffisopa og röltum svo Strikið til baka. En þá var planið að fara í Tívolíið. Það voru eiginlega farnar að renna á mig tvær grímur með að það myndi eitthvað klúðrast með þetta Tívolí þar sem Jakob var svo spenntur að þetta bara hlaut að fara í vaskinn.. Og viti menn þegar komið var að Tívolíinu þá var það lokað fram í apríl.. ÞVÍLÍK VONBRIGÐI.. Jakob tók þessu þó mjög mannalega.
Þá var haldið inn í bangsabúð þar sem Linda valdi sér bangsa sem var svo fylltur upp á staðnum og sett í hann hjarta og hann fékk nafn og fæðingarvottorð. Þetta var voðaleg seremónía þar sem Linda þurfti að taka fullan þátt í fæðingu bangsans sem reyndar var kisa. Þetta er eiginlega snilldar aðferð til að hafa af fólki peninga. Sætu bangsarnir kostuðu ekki mjög mikið en svo er heil álma í búðinni sem eru bara föt á bangsana og þau eru dýr. Snilld að gefa börnunum ódýru bangsana en svo vilja þau auðvitað fá fötin frá ömmum, öfum, pöbbum og mömmum næstu 10 jól og afmæli... Snilldar bissness.... Fötin voru reyndar mjög flott. Allir bangsarnir, þó þetta væru hestar, kisur eða pólarbirnir, pössuðu í sömu stærðir og allst staðar voru göt á buxunum til að skottin kæmust út.. Snilld..
Og þá var haldið á Hard Rock þar sem við biðum í klukkutíma eftir að fá borð en það var vel þess virði því maturinn var góður. Enn eitt bissnestrikkið þarna er að láta fólk bíða eftir borði í Hard Rock versluninni sem auðvitað endaði með því að allir keyptu eitthvað nema Valdi...
Annars var þetta yndislegur dagur og allir fóru hlaðnir pinklum og pakksaddir í lestina heim.
NÝTT ALBÚM: Hitt og þetta
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.