1.1.2008 | 00:18
Áramót í Malmö
Jæjja síðustu dagar hafa verið ljómandi fínir. Bíltúr í Skåne Djurpark og svo ferð í Malmö Kastalann.. Í dag var svo bara farið að versla það sem vantaði í áramótamatinn og svo var áramótaísinn búinn til heldur seint en ég hef komist að því að spariísinn frosnar á ca 4 tímum.. sem betur fer... svo það slapp til annars hefði þetta bara verið áramótasjeik.. síðan fóru Valdi og Krakkarnir út í Kirseberggarðinn og ég kláraði að taka til og þrífa íbúðina..
Áramótamaturinn var hangikjöt sem var stórkostlega gott með uppstúf og grænum baunum. Valdi hafði eytt mörgum klukkutímum og stórum hluta geðheilsu sinnar um daginn í að tengja tölvuna sína við sjónvarpið til að geta horft á Áramótaskaupið og annálana... Allt gekk á afturfótunum.. En svo svissaði hann í Dell-Drasltölvuna mína sem svínvirkaði... svo við gátum horft á skaupið í sjónvarpinu í alveg ágætustu gæðum og ekkert hökt.. Ég held hins vegar persónulega að hápunktur áramótaskaupsins hafi verið að sjá hvernig Remax notaði 3ja milljón króna mínútuna sína.. Ég var reyndar í smá stund að fatta að þetta væri auglýsing.. Hún liðaðist bara í gegn án átaka.. ekki slæm og ekki góð og breytti engu fyrir skaupið sem var bara ekki fyndið... Ef ég hefði verið Remax þá hefði ég bara keypt mínútuna án þess að nota hana og sagt alþjóð að þeir hefðu gert það til að bjarga skaupinu.. Remax hefur á sér nógu slæmt orð þeir séu ekki að rústa heilaga skaupinu fyrir landanum...
Annars fannst krökkunum örugglega skaupið gott þar sem þau sátu alveg límd yfir þessu klukkan 12 að sænskum tíma og högguðust ekki þótt bomburnar færu hamförum fyrir utan... Ég, Valdi og Linda fórum út á svalir og það var meiriháttar.. Svíar eru ekkert síðri en Íslendingar í bombugleði.. Við sáum reyndar ekki mikið frá þriðju hæðinni í blokkarhverfinu... En nóg samt..
Þannig að nýtt ár er gengið í garð hér í Svíþjóð svo við sendum öllum bestu óskir um gleðilegt nýtt ár.....
ATH: NOKKUR NÝ ALBÚM...
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við hér í Amsturdam sendum ykkur bestu óskir um gleðilegt nýtt ár, Við erum hér með pabba og Sigríði, Þið hafið greinilega brallað mikið með krökkunum og farið að skoða margt og skemmtilegt. Vona að þið hafið það sem allra best.
Nýjárskveðja STeinunn, Gústi , Reynir og Sigríður
Steinunn (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 00:42
Hæ Hæ
Gaman að sjá myndirnar, þið hafið greinilega haft það fínt yfir hátíðarnar. Hér er verið að reyna að lesa fyrir próf, en það gengur nú svona og svona. Við óskum ykkur gleðilegs árs og þökkum kærlega fyrir það sem er nýliðið. Hlökkum til að sjá ykkur
Verðum í bandi bráðlega
Rakel, Bolli, Siggi og Hafþór
Rakel (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 23:48
Gleðilegt ár til ykkar!!! Takk fyrir það gamla.
Kv. Sigga, Haukur og drengirnir á Hvanneyri
Sigga Júlla (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 09:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.