29.12.2007 | 09:54
Verslunarferð og leikfangasafn..
Jæjja loksins heyrist frá okkur en hér hefur verið nóg að gera undanfarið.. Ég er alveg að drukkna í þessari helv.... ritgerð svo ég hef nú ekki alveg getað farið í allar skemmtiferðirnar sem Valdi og börnin hafa farið í.
Fyrsta dagin þá skelltu þau sér niður í bæ og röltu þar um... En daginn þar á eftir var farið í verslunarferð í Jagersrocenter... Þar eru útsölur alveg á fullu svo það var pakkað af fólki. Valdi var búinn að ákveða að það yrði farið og versluð föt á börnin þar sem þau eru talsvert ódýrari hér úti en heima og auk þess þá var hægt að kaupa eitthvað á útsölu sem var auka bónus... Ég sá um að finna föt á Lindu en það var alveg rosalega gaman. Hún er svo viljug að máta og ekkert vesen og hún hlustar líka á mig með hvað er flott og ekki flott... (en hvort ég er dómbær um það er annað mál....) En ég var náttúrulega að reyna að kaupa skynsöm skólaföt og vona að það hafi tekist en hún fékk tvennar buxur og einhverja toppa og svo búnt af sokkum sem eru merktir hverjum degi vikunnar... Sunna keypti einhverjar buxur, boli, belti og nærföt en ég náði ekkert að skipta mér af því enda líklega stórhættulegt að fara að hafa skoðun á fatavali unglinga.. Ég reyndi samt að hafa puttana í því sem Jakob og Valdi voru að skoða en komst að þeirri niðurstöðu að þeir voru bara í góðum málum en jakob keypti buxur, peysu og fína úlpu. Ég náði að kaupa mér léttan jakka og topp fyrir Gvatemalaferðina á útsölu í Zizzi sem er "fitubollubúð" eins og valdi kallar það... Nei það er ekki hægt að kaupa fitubollur þar (eins og Valdi heldur) heldur er þetta búð með stórum stærðum..
Um kvöldið var bara farið útí búð og keyptar pizzur en pizzustaðurinn Pizza Algarve er hér úti á horni og bara með þokkalegar og ódýrar pizzur.. En sænskar pizzur eru yfirleitt frekar vondar...
Í gær þá þurftum við að stússast vegna Telía reikningsins og við þurftum að borga húsaleiguna. Telía internetfyrirtækið er alger brandari.. Selur okkur háhraða net sem virkar ekki og veitir alveg ótrúlega lélega þjónustu og rukkar svo 20.000 krónur íslenskar fyrir netsambandið.. DÓ.... Eitthvað að hér... En þeir voru lokaðir svo við bara borguðum reikninginn og ég tek kast seinna að rövla...
Ég var líka frekar pirruð í bankanum þegar ég sá að við erum rukkuð um 600 krónur íslenskar fyrir að borga með peningum en ekki í heimabanka... Ég lét gaurinn vita að mér þætti þetta fáránlegt og hann brosti bara. Og lýsandi fyrir þjónustuna hjá þessum banka þá var drengstaulinn með þvílíkann sogblett á hálsinum að hann hefði sést á gervihnattamynd... Jæjja ég verð að hætta að pirrast út í sænska þjónustulund sem er ekki til staðar... Eftir þetta stúss þá tók ég bílinn en Valdi og krakkarnir fóru í Leikfangasafn niðri í bæ og svo röltu þau svolítið um og fóru í Íþrótta-outlet-búð og keyptu í þróttapeysu fyrir Jakob. Leikfangasafnið var víst skemmtilegt en þar sáu þau eldgamlar barbí og slíka hluti og líka Bratz dót... En þar mátti ekki taka myndir því miður..
Í kvöldmatinn var svo villisvínasteik en Jakob hafði óskað eftir því. Hún var ágæt en svolítið þurr en allt meðlæti var de-lúx eins og sósan og waldorfsalatið sem við Linda gerðum.
Um kvöldið var svo ostaveisla en við áttum eftir að borða ostana sem átti að borða á aðfangadagskvöld. Ótrúlegt en satt þá borðaði Linda vel af villisvíninu og svo borðaði hún ostana um kvöldið eins og hún væri botnlaus... Ég hélt nú ekki að 7 ára krakkar vildu osta með sultu og kexi svo ég tók út ís fyrir hana en viti menn hún varla leit við ísnum...
Jæjja nú er þvottamorgunninn mikli og bráðum ræsi ég börnin og planið er að kíkja í langan bíltúr í dag.. Og ég held ég leyfi mér bara að fara með þó ritgerðin sé alveg í steik....
TVÖ NÝ ALBÚM
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl verið þið. Hér er kolvitlaust veður og ekki hundi út sigangi fyrir rigningu og roki. Svona verða nú áramótin á íslandi í ár. Vona að þið hafið það betra þarna í Sverje. Kveðja að sinni Steinunnn
Steinunn (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 10:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.