25.12.2007 | 23:10
Börnin komin..
Jæjja þá eru börnin komin í 10 daga... Fluginu seinkaði um næstum einn og hálfan tíma... Það var víst tvísýnt hvort þau færu í loftið yfir höfuð vegna veðurs.. en sem betur fer hafðist það..
Við héldum svo litlu jólin heima í kvöld og á boðstólnum voru sænskar kjötbollur.. Mér finnst slíkur matur alveg óskaplega góður og ég borða alltaf yfir mig af sænskum kjötbollum. Þær eru líka taldar til hátíðarmats hér í Svíþjóð.... Síðan var heimagerði fíni ísinn minn í eftirrétt...
Eftir matinn voru pakkarnir teknir upp og nóg var af þeim... Eins og sést á meðfylgjandi myndaalbúmi....
Ljómandi skemmtilegt jóladagskvöld... og ég held að allir hafi verið ánægðir með sínar gjafir... Ég held að gjöf kvöldsins hafi nú samt verið gítarinn sem við gáfum Sunnu.. En hún var óskaplega ánægð með hann og þetta kom henni algerlega á óvart...
Jólakveðjur frá öllum hér í Malmö
NÝTT MYNDAALBÚM.. Eiginlega tvö albúm.. Jól í Malmö og Börnin komin ...
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Óskum ykkur gleðilegrar jóla og hafið það sem best í Svíaríki....Gamann að skoða mydirnar af jólunum ykkar,,,,Stór jólaknús og fullt af kramli........
Erum búinn að setja Svíþjóð á óskalistann....
Krakkarnir senda góðar kveðjur
jólaóslir
úr Lindarbæ
Sigga og Jónas (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 22:02
Sæl verið í Svíaríki.
Óska ykkur gleðilegar jóla eða jólaresta og gæfuríks árs. Aldrei að vita nema maður fái sér bíltúr suður á bógin og banki upp á í kaffi.
Með bestu kveðju frá Norge.
Klem Oddný
Oddný Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 23:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.