21.12.2007 | 20:21
Harðsperrur
Shittur maður...
Hvað geta harðsperrur eiginlega verið vondar? Ég er búin að hökta um í allan dag í agalegum vesældómi en ég hef greinilega hreyft við rassvöðvum í gær sem aldrei hafa hreyfst áður... ÞETTA ER SÁRT.... Valdi hlær að mér við hvert tækifæri og finnst þetta agalega fyndið og kallar mig Lipurtá... En ég er samt með einbeittan brotavilja að fara aftur í Veggtennis á morgun þar sem við eigum pantaðann tíma og þetta er síðasti séns fram í febrúar til að spila.
Í dag voru jólagjafainnkaupin kláruð. Við keyptum einhverja undarlega útgáfu af hamborgarhrygg sem var beinlaus en sáum svo í fréttunum á Rúv að hægt er að kaupa "íslenskan" hamborgarhrygg með beini einhvers staðar í Köben. Við keyptum gular og grænar baunir og ætlum að hafa sykraðar kartöflur. Síðan voru keyptir jólaostar, jólaglögg, jólanammi og allt tilheyrandi í jólaísinn. Ég keypti líka piparkökur svona tilbúnar og glassúr til að leyfa krökkunum að skreyta ef þau hafa áhuga.. Ok.. ég svindlaði svolítið og nennti ekki að baka...
Restin af deginum fór í uppvask og kvöldið í letilíf... Ég stefni á öflugan dag í ritgerðinni á morgun.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ . Hitti Lindu Ósk í dag. Hún og Þórný komu til mín í Garðheima og tóku pakkana til krakkana og þau koma með pakka til ykkar fra okkur hér í Amsturdam. Vona að þið hafið það gott og við heyrum kannski eitthvað frá ykkur um hátíðarnar. Kveðja Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 23:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.