Lipurtá og letilíf

Valdi er kominn í jólafrí og á að vera að lesa undir próf en hefur ekki alveg komið sér í það.. Hann lá uppi í sófa í dag og las Harðskafa... Ég er hins vegar enn alveg á kafi í ritgerðinni. Ég held að allt í allt séu 5 bls. í höfn og þá eru um það bil 10 eftir. Ég fer hins vegar að renna í þrot með efni enda hef ég alltaf haft það að markmiði að skrifa stuttan og hnitmiðaðan texta, gæði en ekki magn en við eigum að skila 15 blaðsíðum.

Síðdegis þá drifum við Valdi okkur loksins í Squash eða reyndar Racketball sem er aðeins annað,  en báðar þessar íþróttir ganga undir nafninu Veggjatennis heima á Íslandi. Ég spilaði Squash sem unglingur með pabba í Veggsporti þar til tekið var fyrir að lána okkur stelpunum salinn (við systurnar og Þórgunnur Ársælsdóttir) þar sem sífelldar djassballettæfingar þóttu ekki viðeigandi í Veggjatennissal. Síðan komst ég aftur í Squassið úti í Gambíu en þar spilaði ég nokkrum sinnum með Nígerískum læknum.  En ég var úti í Gambíu 1994 og hef því ekki spilað Veggjatennis í mörg ár svo tilhlökkunin var mikil. Það tók svolítinn tíma að koma sér aftur í gírinn en eftir það var þetta rosalega gaman.. En ég finn það að ég þarf að létta mig talsvert til að ná einhverri snerpu en ég var nú engin Lipurtá að hlussast þarna á eftir boltanum.  En þetta var æði og við erum búin að panta tíma aftur næsta laugardag. Gallinn er að þetta er mjög dýrt sport og líklega höfum við ekki efni á að fara nema í mesta lagi 2-3 í mánuði..

Eftir þessa hollustu þá dró Valdi mig í langan bíltúr til að láta mig smakka MAX hamborgara en það er sænsk-hamborgarakeðja eins og Mac Donalds en bara snyrtileg og með alvöru stórum og góðum hamborgurum. Hrein snilld en ansi subbulegt eftir líkamsræktina... Og bara til að toppa klúðrið þá keyptum við okkur súkkulaði á leiðinni heim og liggjum núna uppi í sófa og skönnum sjónvarpsstöðvarnar.... Já það er erfitt þetta námsmannalíf....

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 294955

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband