17.12.2007 | 20:58
Bólusetningar í höfn
Þessi dagur var eiginlega uppfullur af fýluferðum en Valdi hjólaði upp í skóla í morgun til að hitta einn kennara sem var ekki við. Síðdegis hjólaði Valdi svo af stað til að hitta Agniezku sem er með honum í hópavinnu en hún hringdi á miðri leið og sagðist vera upptekin í jólagjafainnkaupum. Á endanum frestaðist hittingurinn fram á morgundag.
Ég fór snemma í skólann í morgun en þetta er í síðasta sinn í bili allavega sem ég þarf að vakna 6:15 til að taka lestina. Eitthvað sagði mér þó að ég ætti bara að snúa mér á hina hliðina og halda áfram að sofa en ég reif mig á fætur og dreif mig í skólann. Þá var eitthvað vesen á fyrirlesaranum og við vorum send út í gróðurhús til að hangsa til kl. 11.. Þetta er svo ópró að láta okkur hangsa úti í gróðurhúsi og kennarinn væbblast um og talar dönsku. Ég minnti hann þrisvar á að tala ensku í morgun en gafst svo upp og hætti að fylgjast með. Klukkan hálf eitt var svo Gvatemalafundur sem var heldur þunnur. Ég þrammaði svo niður í KU til að sækja bækur um sveppi sem ég hafði pantað hjá einum kennara og þær voru komnar og áttu að vera í hólfinu hans. EN NEI... Hann hafði gleymt að setja þær þar... Andsk..... ég var svo pirruð búin að labba og labba og fara í hraðbanka og kaupa umslag og vesen, vesen, vesen....
Þegar heim kom þá ákvað Valdi að dekra við mig og keyra mig niður í Vaccination clinic sem var opin á milli "futten og nítten".... Ég hefði getað labbað eða hjólað þangað en það var svo kalt og ég var þreytt eftir langan Köben dag. Við fundum sum sé út að bólusetningarstofan er bara 1 km í burtu nánar tiltekið í bakgarðinum þar sem Lilja og Vaggi bjuggu meðan þau voru hér. Fyndið.. svona nálægt en tók eilífð að finna.. Og ótrúlegt þá virkaði það og ég fékk mínar sprautur.. Eitthvað var nú enn í gildi af fyrri bólusetningum svo ég fékk bólusetningu við lifrarbólgu og þurfti að endurnýja Kóleruna en restin var í fullu gildi... Þetta kostaði reyndar heilan helling en mikið óskaplega er mér létt að vera búin að ganga frá þessu.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hæ og takk fyrir síðast
jæja gott að sprauturnar höfðust - mér gekk vel til köben en fékk ælupest á sunnudagskvöldið en ég komst heim á klakan - þetta var frekar endasleppt helgarferð hjá okkur hjónum.
bestu kveðjur
Guðbjörg
Guðbjörg (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 23:21
Hæ. Jæja þá fara grísalingarir að koma til ykkar. Vona að þið eigið ánægjuleg jól og áramót með þeim. Viljið þið senda mér heimilisfangið hennar Rakelar til mín svo ég geti sent henni jólakort þó svo að það berist milli jól og nýárs eða á nýju ári. Kveðja úr rokinu og rigningunni Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 00:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.