11.12.2007 | 15:55
Stúss og aftur stúss..
Síðustu tveir dagar hjá mér hafa mikið til farið í tölvustúss, bókasafnsuppflettingar, heimildalestur, tölvupóstsendingar, úthringingar og vesen. Ég er að taka törn númer 10 í að fá Nova/Nordplús styrkinn en Háskólinn hér er búinn að senda mig í 10 hringi út af því máli og í dag loksins hitti ég á einhvern sem raunverulega kom málinu við og þá var bara svarið NEI þú átt ekki rétt á styrknum því þú býrð í Svíþjóð. Það er spæló.. Ég er líka enn að reyna að finna út hvar ég á að fá bólusetningar og ég held ég sé komin með númer á Vaccination clinic en símsvarinn talar bara sænsku og segir að það sé opið milli Futten og nitten... Skil ekki sænsku en ég held það sé Sautjan og nítján... Ég ætla allavega að prófa að hringja aftur þá. Gaurinn frá Telía kom í morgun og það tók hann tvær mínútur að segja að hann gæti ekki hjálpað mér og skildi ekki af hverju netið væri ekki hraðara og þar með fór hann.. ég ætla EKKI að borga 3000 kr. útkall á hann.. GLÆTAN...
Hins vegar kom Guðbjörg í gær frá Íslandi og verður hjá okkur fram yfir helgi. Það er snilld því að Valdi er einmitt í burtu og mér leiðist þá ekki á meðan. Við Guðbjörg erum búnar að spjalla mikið og fórum í gönguferði í Parkinn áðan sem var mjög næs. Við ætlum svo að borða pizzur í kvöld fá okkur púrtvín og horfa á Desperat Housvifes.. En Guðbjörg er hér til að flytja lokaverkefnið sitt við SLU í landslagsarkitetúr. Hrein snilld..
Valdi og Rakel lögðu af stað hálf sex í morgun í vettvangsferð. Valdi sagði að þessi ferð væri nú eiginlega hálfgert prump... lítið verður úr verki og skipulagning léleg. Það er til dæmis frídagur á morgun þar sem nemendur geta tekið þátt í Elgveiðum eða gert ekki neitt. Jú elgveiðar hljómar kannski spennandi en þetta felst í því að standa úti í skógi og klappa saman höndunum heilan dag... Spennandi? NEI.... Þau ætla bara að gera eitthvað spennandi á morgun eins og að kíkja til Gautaborgar.
Jæjja best að hringja í Varnhem Vaccination clinic þar sem klukkan er að verða FUTTEN...
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hehe, futten... ú hljómar næs, pizza, púrtvín og despo ;) ég væri til í að vera þarna líka :S en í staðinn hef ég skóginn, ræktina, frænku hans Vagga og co. og fallega Uppsala (alltaf að telja mér trú um að þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá mér að flytja) en skilaðu bestu kveðju til Guðbjargar frá mér...
Lilja Filippusdóttir (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 21:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.