Jólatrums í Malmö

Á laugardaginn þá ákváðum við Valdi að eiga algeran jóladag saman og fara niður í gamla bæinn í Malmö og upplifa jólastemninguna. Við tókum strætó niður í bæ og stukkum út á Drottningartorginu þar sem fyrsti markaðurinn var. Það var nú reyndar bara skemmtilegur bændamarkaður sem hafði verið þarna í sumar, aðallega grænmeti en ekkert jólalegt. Við héldum áfram röltinu og fórum inn í Caroli center sem er verslunarmiðstöð þarna en það var bara pakkað af fólki og óspennandi, þaðan héldum við svo beint yfir götuna inn í eitthvað port og húsaþyrpingu sem heitir St. Gertruds. Það var eins og að fara á milli tímabelta að fara úr Mollinu í gamla portið. Þar var yndislegur markaður þar sem hægt var að kaupa jólaglögg og handverk og þar var lúðrasveit að spila. Við síðan bara röltum okkur um í gamla bænum og duttum inn á nokkra markaði. Við vorum ekkert að versla svo stressið var ekkert hjá okkur. Ég keypti mér reyndar ullarvettlinga ódýra af einhverri vistvænni kind og á sama stað mátti kaupa íslenskar gærur. Ég sá líka bás þar sem kona var að selja svona ofna renninga á borð, svona langdúka. Hrein snilld. Mikið vildi ég að ég kynni að gera svoleiðis.. Kannski Hildur systir geti kennt mér..

Á Stóra torgi var búið að koma upp skautasvelli og stóru jólatré. Þar var lítill gutti sem stóð ekki í lappirnar á skautunum og ég hreinlega emjaði af hlátrið, greyið. En mamma hans barðist líka við hláturinn hann var svo fyndinn. Að lokum tók hann þann kostinn að skríða á fórum fótum til mömmu sinnar..  (Sjá myndir) Út um allan bæ var jólastemning, allskonar markaðir og jólasveinar á ferð, hjálpræðisherinn syngjandi og kórar og slíkt. Þetta var ósköp yndislegt.

Planið var svo að labba sig í gegnum miðbæinn heim og stoppa og fá okkur jólaglögg en eitthvað tókum við vitlausa beyju og enduðum nálægt Rosengard (Subbuhverfi) og gengum þar um í ósjarmerandi hverfi með engum búðum og fullt af hundaskít... Við löbbuðum og löbbuðum og löbbuðum og komum loks á stað þaðan sem við rötuðum heim en við höfðum farið svakalega krísuvíkurleið... svo bæjarferðin endaði öðruvísi en áætlað var og við komum örþreytt heim og fengum ekkert jólaglögg.

Restin af deginum fór í skýrslugerð hjá Valda en ég var að læra og sunnudagurinn stefnir líka í lærdóm og skýrslugerð.

(SJÁ NÝTT ALBÚM)

Kveðjur frá Malmö


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Komið þið sæl.....

Mikið hefur þessi ferð verið notaleg.....það er alltaf svo gamann að rekast á eitthvað nýtt....

Var að kíkj yfir albúmin ykkar mikið .... og ég fór nú einfaldlega bara að hlægja þegar ég skoðaði mynirnar af fyrstu íbúðinni.......hefð sko verið fljót að forða mér.......Valdi tekur sig vel út með Hafrinum.......

Jónas er farin að tala um helgarferð til Malmö...ég veit ekki hvernig það hljómar í ykkar eyrum....en það yrði nú aldrei strax....

Guðrún ég kann að vefa en hendurnar mínar er frekar slappar svo ég væri alveg til í koma þér í gang.....(ef þú villt) þá á ég við seinna auðvita....

Jónas byður voða vel að heilsa og átti ég að skila því til Valda að gúrkuplönturnar væru komnar á beð hjá sér og nú sé hann að fara að breyta alveg heilmiklu í skipulaginu á stöðinni... og verð ég að segja að áhugi hanns á ylrækt kemur alltaf meira og meir á óvart.....nú vill hann bara verða stæðsti Lífræni framleiðandinn....

Nóg í bili úr Lindarbænum

sigga og Jónas (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðrún og Valdi

Höfundur

Guðrún og Valdi
Guðrún og Valdi

Fyrir framan Álfhólinn á Hvanneyri..

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið
  • Húsið

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 294954

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband