6.12.2007 | 09:06
Grænmetis- og ávaxtamarkaðir í Köben.
Eitthvað gekk mér illa að halda svefni fyrir brottför í skólann en ég vaknaði galvösk upp úr klukkan þrjú og gat ekki sofna aftur. Ég bara þoli ekki þessar lestarferðir mikið lengur.. En allavega þá byrjaði skólinn heldur dapurlega en það var veðurbeltafyrirlestur og aumingja kennarinn bara DREPUR OKKUR úr leiðindum.. ég skil ekket sem hann segir og ég heyri ekki helminginn heldur. Þetta efni er ekki til prófs (held ég) og því tók ég þann kostinn að lesa Moggann í tætlur á netinu, skoða fasteignaauglýsingar og ég las meira að segaj 24 stundir sem ég hef ekki lesið áður... Þar á eftir var ljómandi góður fyrirlestur um Nytjagrös eins og hveiti, Millet, Maís og slík grös.. Það var gaman og sá kennari var góður. Í hádeginu þá gengum við Trópí-hópurinn frá umsóknum um styrki fyrir ferðina okkar en styrkurinn frá alþjóðasjóði skólans brást svo við þurfum að borga ferðina að fullu úr eigin vasa ef ekki fást styrkir á móti. Arrgg....
Eftir hádegið var farið í torkennilegar útlenskar búðir á Ystegade og þar í kring. Þetta voru svona grænmetis- og ávaxtabúðir eða markaðir sem seldu líka krydd og allskonar dót. Þetta var óskaplega gaman og forvitnilegt. En ég skil ekki tilganginn með að fara með 20 nemendur saman í svona hópferð inn í litlar þröngar búðir þar sem aðeins 3-4 nemendur heyrðu hvað kennarinn sagði í það og það skiptið. Ég var með bakpokann minn og fartölvuna svo ég komst bara varla inn í sumar búðirnar.. En þessar búðir voru algert ævintýri út af fyrir sig. Ég verslaði svolítið í síðustu búðinni en þar var rýmra svo við komumst öll fyrir þar.
Þegar við vorum að leggja af stað úr fyrstu búðinni þá fylgdumst við með því þegar verið var að flytja stóran gám sem verið hafði verkamannaaðstaða á byggingasvæði. Upp fór gámurinn og svo fór hann að hallast og þá fór eitthvað að leka út úr gáminum.. OJBARASTA... það hafði gleymst að loka fyrir salernisrörið svo út gusaðist brún drulla... (lýsi því ekki nánar)... Út um allt á götuna og á allskonar vinnudót sem mennirnir voru með þarna... Ojjjjjjjjjjjj.....
Valdi var í hópavinnu allan daginn. Stelpurnar eru enn með múður og mættu ekki fyrr en þær voru sóttar um hádegið og kvörtuðu enn og einu sinni yfir hvað lítið væri búið að gerast!!!!!! Moðhausar... Kvöldið fór í próflestur hjá Valda en ég ætlaði að dekra við hann og gera gúllash þar sem hann var í próflestri en gúllasið var ógeðslega vont. Ólseigt.. þvílík vonbrigði og meira að segja upphitaða hvítlauksbrauðið var vont. Pakkakartöflumúsin hér í Sveden er líka þannig að það þarf örugglega hálft kg af sykri til að hún hætti að bragðast eins og pappír.
NÝTT ALBÚM MEÐ ÞESSARI FÆRSLU
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 294954
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
OO..svona dagar eru nú alveg,,,,,,,
En vittu til kanski er morgundagurinn dagurin þegar allt er pottþétt....
Hér eru allir orðnir nokkuð brattir eftir leiðinda flensu...
Jónas er á fullu að undirgúa gróðurhúsin undir ræktunina sem er að fara í ganga bara spennó Jónas að rækta tómar og gúrkur........svo þess á milli les hann allt sem hann finnur um ylrækt....
kv úr Lindarbænum
Sigga og Jónas (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 09:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.