2.12.2007 | 18:48
Jólastemning í Köben og piparkökur
Á laugardaginn þá fórum við inn til Köben að hitta Brján og Karen. Við ætluðum hjólandi en það var mígandi rigning svo við tókum bara strætó niður á Central. Ég bjóst nú við hálftómri lest og nóg af sætum en þegar inn í lestina var komið þá var pakkað og engin sæti. Ég var frekar fúl þar sem ég bara verð að fá sæti, get ekki staðið í 40-50 mínútur.. Svo út fórum við og vorum að spá í að taka næstu lest en þá sáum við að það var verið að bæta við nokkrum lestareiningum svo þar fórum við inn manna fyrst og fengum sæti. Jibbí.. eftir 5 mín þá var þessi hluti lestarinnar alveg PAKK FULLUR... Þá eru þetta Svíarnir á leið í jólastemningu í Danmörku...
Við ætluðum svo að hitta Brján og Karen á Laundromatinu sem er veitingastaður Frikka Weiss í Köben.. En vegna einhvers allsherjar misskilnings þá héldu allir að staðurinn væri á Íslandsbryggju svo þangað var haldði en ekki fansnt Elmegade þar.. Eftir eitt símtal okkar á millli þá uppgötvaðist misskilningurinn svo Brjánn og Karen hoppuðu upp í Taxa og við í annan Taxa og fundum svo loks Laundromatið í Nörrebro. Þetta er fínasti staður, huggulegur en alveg pakkaður af fólki. Við fengum fín sæti og góða hamborgara. Það var virkilega gaman að hitta Brján og Karen en Brynhildur Þórey var í pössun hjá Pabba og Siggu. Eitthvað klúðraðist hópmyndataka og myndataka almennt inni á veitingastaðnum svo ég sat bara uppi með mynd af okkur Valda og enga mynd af Brjáni og Karen, hvað þá af okkur öllum fjórum.. Darn...
Eftir kaffi á næsta kaffihúsi þá héldum við Valdi niður á Nýhöfn til að spóka okkur á jólamarkaði sem þar var. Það var svolítið rok og 6 stiga hiti en samt jólalegt og góð stemning. Það var búið að setja upp skautasvell á Kongens Nytorv og fullt af jólaljósum alls staðar. Við fórum síðan inn á Hafmeyjuna sem er krá þarna á Nýhöfn og fengum okkur jólaglögg og Eplaskífur sem er eitthvað danskt jóladæmi, virkilega kósi og rómó..
Síðan strolluðum við niður Strikið og á Ráðhústorgið þar sem voru ljómandi fottir panflautuleikarar... Ég var samt ekki alveg viss um að þeir væru ekta þar sem síðustu hljóðfæraleikarar sem við sáum voru bara að blöffa en það komst upp þegar geisladiskurinn stóð á sér.. Hehe... Pínlegt..
Við slepptum því að fara á jólamarkað í Tívolí enda var mannfjöldinn alveg gífurlegur svo við fórum bara á lestarstöðina og þá var PAKKAÐ af fólki þar.. ALVEG PAKKAÐ.. Það var ekki séns að við kæmumst í sæti eða bara inn í lestina yfir höfuð.. Ég fékk þá "fínu" flugu í höfuðið að taka S-tógið númer 10 upp á Nörreport og taka svo næstu lest þaðan til Malmö en það er stöðin á undan Hovebane og þá gætum við fengið sæti áður en lestin kæmi í geðveikina á Hovebane. Valdi vildi nú frekar bara fá sér bjór og taka bara næstu lest í rólegheitunum.. En nei.. ég dró hann í kasti að spori 10 og upp í lestina og upp úr stöðinni á Nörreport og niður í Lestarstöðina og upp í næstu lest til Malmö.. Panikk en slapp upp á mínútu.. Og jú við fengum SÆTI.. JIBBÍ... En sigurglottið rann af mér þegar við keyrðum inn á Hovebane og einhverjar örfáar hræður skriðu inn í lestina.. Milljón laus sæti.. Hehe... Líklega hefði bjórhugmyndin hans Valda verið betri og jú.. ég er búin að fá að heyra það nokkrum sinnum hvað þetta var gáfuleg hugmynd eða þannig....
Í dag (sunnudag) þá fór ég snemma upp í Burlov Center að versla smá en ég var búin að ákveða að baka Baby Ruth köku í dag sem og ég gerði og tókst ágætlega nema að kakan var þurr.. Ég fann ekki ritzkex og ég er að prófa ný silikon form og svo er náttúrulega ofninn nýr svo þetta var svona öðruvísi. Eftir hádegið fórum við í jólakaffi til Rakelar og guttanna ásamt Önnu Maríu. Þetta var ljúft síðdegi með piparkökum og ostum. Virkilega næs og gaman að spjalla við Rakel og Önnu Maríu.
NÝTT ALBÚM
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kærar þakkir fyrir innlitið í dag, alltaf gaman að spjalla. Kakan er þvílíkt góð, er alltaf að narta í hana öðruhvoru. Heyri líka lærapokana þenjast út, en maður sleppir bara ekki svona góðgæti
bestu kveðjur frá okkur guttunum.
Rakel (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 19:38
Það var ekki hægt að standast það að opna kortið þegar það byrtist áðan í póstkassanum....
Frábært að þið skuluð vera með blogg.....það verður gaman að fylgjast með ykkur og lífinu í Katholti eða var það á Sjónarhóli.....
kv
Sigga og Jónas
www.123.is/lindarbaer
þar erum við
Sigga og Jónas (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.