28.11.2007 | 23:00
Þreyttur skóladagur
Ég er alveg að verða búin að fá nóg af að ferðast svona á milli landa í skóla. Ég var svo stressuð því ég átti að vakna 6.15 að ég sofnaði kannski smá upp úr þrjú í nótt.. Ég var svo ÞREYTT í morgun þegar ég skreið út á stoppistöð og missti af strætó.. Darn.. en náði samt 7.02 lestinni og svo strætó beint í KVL. Miðvikudagar eru langir dagar, alveg frá 8.30 til 17.00 samkvæmt stundaskrá. Þetta byrjaði vel með öflugum fyrirlestri um ávexti alveg til 10:20 en eftir það var bara hangs til ca 11:15 og þá var farið út í gróðurhús til að drepa tímann.. Mér finnst þetta alveg ólíðandi í framhaldsnámi að hafa svona hangs í lengri tíma. Ég er komin hérna langar leiðir til að læra og nenni ekki að "hangsa" og lesa Moggann á netinu í tíma... Get alveg gert það heima hjá mér. Eftir hádegið var síðan allra leiðinlegasti fyrirlestur í heimi um veðurfarsbelti og kennarinn mumlaði bara og ég skildi ekkert hvað hann sagði enda var ég orðin svo þreytt að ég bara gafst upp og fór heim klukkan 14:15.... Ég þykist nú kunna eitthvað smá í þessum veðurbeltum eftir að hafa séð um heimavinnuna í vistfræðinni hjá AGÞ.
Ég steinsvaf í lestinni á leiðinni heim, alveg steinsvaf. Vörðurinn vakti mig til að sjá miðann og svo bara svaf ég þar til á Malmö Central. Ég vona bara að ég hafi ekki hrotið of hátt.
Valdi var í hópavinnu í allan dag en nú fer að sjá fyrir endann á þessu hópverkefni en það gengur alveg ágætlega hjá hópnum. Næsta hópverkefni verður svo sett fyrir á föstudaginn svo það er enginn friður. Það verkefni er stærra um sig en þau eru þá 4 í hóp og það verkefni verður kynnt strax eftir jólafrí.
Síðdegið fór í það hjá mér að velja mér próflestrarefni. En það er þannig að við fáum að velja ákveðnar plöntufjölskyldur til að lesa fyrir munnlega prófið. Fjölskyldunum eru gefin stig og við eigum að hafa 80 stiga virði af fjölskyldum. Orkideur eru td. svo stór fjölskylda að hún telst 4.6 stig en smærri fjölskyldur eru bara 1 stig. Þetta tók talsvert meiri tíma en ég hélt og líklega útskýrast nördaupplýsingarnar í myndaalbúmi dagsins af þessu dagsverki mínu.
Sum sé NÝTT ALBÚM en bara fyrir blómanörda....
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.