27.11.2007 | 00:42
Sopstationen og jólakortaskrif
Það var ekki nokkur leið að ég hefði mig á fætur 5:15 til að mæta í skólann. Ég var svo stressuð þegar ég skreið upp í í gærkvöldi að ég myndi ekki vakna að ég bara sofnaði EKKI (minnti mig á morgunsjónvarpssvefnmartraðirnar hér í gamladaga) ... Svo ég bara slökkti á vekjaraklukkunni og snéri mér á hina og steinsvaf til hádegis... Úpps....
Valdi var í skólanum í allan dag í verkefnavinnu en það er nóg að gera hjá honum. Ég eyddi deginum í allskonar tölvustússi og kvöldið fór í að klára jólakortin. En síðdegis fórum við niður í Telia í milljónasta skiptið til að reyna að redda internetinu sem er ekki nógu hratt.
Á leiðinni heim kíktum við í Sopstationen. Ég tók fullt af myndum og setti inn sem albúm því mér finnst þetta ein skemmtilegasta skranbúð sem ég hef komið í. Hún er í gömlu verksmiðjuhúsnæði sem er upphaflegt og hrátt. Dótið endurnýjast mjög fljótt og alltaf detta inn flottir hlutir. Auðvitað er megnið af þessu talsvert mikið drasl en inni á milli eru stórkostleg húsgögn og fleira áhugavert dót sem vert er að skoða. Ég myndi vilja versla miklu meira þarna en við getum bara ekki flutt endalaust með okkur af drasli. Allt starfsfólkið er eithvað svona "sunnan" við sig eins og Valdi myndi segja og enginn þeirra talar ensku en alltaf er hægt að bjarga sér og þau hafa öll mikla þjónustulund. Þeim er samt ekki treyst fyrir peningunum beint, þau bara slá inn í kassann og svo er tæki sem gefur til baka fyrir þau.
Ps. takk fyrir commentin á myndirnar. Jú Elín þetta var dama þarna í miðjunni.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ og takk fyrir kveðjuna.
Ég man líka eftir morgunsjónvarpsmartröðunum, alveg brilliant :)
Gaman að sjá hvað þið eruð að gera, verð í bandi á msn við tækifæri.
Gia
xx
gia (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 13:42
Komið þið sæl og blessuð, maður fylgist nú með ykkur þó ekki heyrist mikið frá manni. Nú bý ég í Ráðsmannshúsinu með svona ljómandi útsýni að Álfhóli.
Góðar stundir: Steinar.
Steinar (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 23:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.