25.11.2007 | 12:35
Jólaverslun og afmæli
Helgin er búin að vera næs hjá okkur hér í Malmö. Í gær fórum við að versla jólagjafir en jólaverslunin er greinilega hafin á fullu hér í Malmö því það var pakkað í verslunarmiðstöðinni. Samt gekk þetta hratt og vel fyrir sig og við náðum að klára allt sem við ætluðum að gera. Þegar heim kom þá fór ég að pakka inn jólapökkum og dúlla mér eitthvað..
Um kvöldið skelltum við okkur í þrítugsafmæli Sigga Þórs í Lomma. Planið var nú að stoppa frekar stutt og koma heim og halda áfram að skrifa á jólakortin... En.... það virkaði nú ekki betur en svo að við komum heim rétt fyrir fjögur um nóttina... Þvílíkt stuð. Það var hist á Lommakránni en þar fengum við okkur að borða. Ég fékk alveg ljómandi góða svínasteik og Valdi nautakjöt... Þá voru skemmtiatriði sem fólust aðallega í spurningakeppni um afmælisbarnið... Hummm... mitt lið fékk 4 stig af 13 mögulegum... Og þau sem unnu voru með 5 stig... úpps... En þetta var stuð... Um ellefuleytið var farið heim til Sigga og Hildar í Lomma og þar var spjallað og dansað fram eftir nóttu við íslenska tónlist.. Við Valdi skemmtum okkur alveg óskaplega vel en erum hins vegar að súpa seyðið af því í dag með tilheyrandi letilífi... Held að jólakortaskrif sé það eina sem ég nenni að gera í dag af viti...
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Glæsilegt ammli
hlynur Gauti (IP-tala skráð) 25.11.2007 kl. 12:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.