22.11.2007 | 22:01
Ísland-Danmörk
Eitthvað gekk illa hjá mér að vakna í skólann í gær en ég á að taka strætó 6:44 og það er OF SNEMMT..... Ég hafði líka verið að lesa nýju bókina hans Arnalds Indriðasonar Harðskafa fram eftir nóttu en hún gerðist æsispennandi á síðustu blaðsíðunum.
Ég mætti því heldur seint í skólann. Í hádeginu hitti ég nokkra Íslendinga sem eru í KVL Belindu, Stefán og Örnu Dögg... Alltaf gaman að hitta Íslendinga..
Ég og Dýrleif stungum snemma af úr tíma og drifum okkur á Íslendingabarinn Café Renomé sem er fyrir framan Tívolí í Köben. Þar átti klúbburinn Áfram-Ísland að hittast fyrir leik. Við vorum heldur snemma og fengum því sæti sem var hrein snilld. Svo komu Valdi og Siggi og hittu okkur. Brátt varð staðurinn smekkfullur af Íslendingum með asnalegar húfur, fána, trefla og andlitsmálingu.. Í hátalarakerfinu glumdu Íslensk Júróvisionlög, GCD með Mýrdalssand og fleiri íslenska hallærisslagara. Þetta er frekar undarlegur félagsskapur svona Íslendingasamkomur. Ég rakst á nokkra sem ég þekkti þarna eins og td. Eika Roskilde sem heitir reyndar Eiríkur Bergmann en við kynntumst á Hróarskelduhátíðinni í DK fyrir 20 árum síðan.. Einnig hitti ég Hallla Hal sem var með mér í Réttó fyrir 100 árum síðan. Ég held ég hafi ekki einu sinni hitt hann á götu síðan en skarpur var hann að átta sig á því að ég væri Guðrún en ekki einhver ein þriggja... Ég sá líka Auði sem vann með mér á Glym en týndi henni svo áður en ég náði að spjalla við hana. Á leiknum hitti ég Hvata frá Stöð 2 með son sinn. Við tókum bara taxa á leikinn og gengum inn undir þjóðsöngnum. Við fengum fín sæti fremst og sáum mjög vel allt sem fram fór á vellinum. Það er skrýtin stemning á svona Landsleikjum erlendis, Íslendingarnir náttúrulega teiga bjórinn stjórnlaust og svo er baulað og sungið.. Annars var leikurinn hundleiðinlegur og ég hefði líklega stungið af í hléi ef ég hefði fengið Valda með mér. Það var svo kallllllltt.... En ég hafði fyrr um daginn týnt vetlingunum mínum.
Eftir leik fórum við aftur á Íslendinabarinn þar sem við vorum óþarflega lengi fram eftir nóttu. Lestarferðin heim tók nú sinn tíma svo við vorum komin í bólið hálf fjögur.
En þetta var nú eiginlega lífsreynsla sem er nauðsynlegt að upplifa einu sinni á ævinni allavega. Sum sé það að gerast Íslensk fótboltabulla erlendis... En Valdi tók þeim pakka nokkuð alvarlega og keypti sér húfu, trefil og mikinn bjór... (sjá myndir)..
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.