20.11.2007 | 22:06
ÁFRAM ÍSLAND - AFTUR Á BAK DANMÖRK
Valdi mætti í skólann um hádegið og var í tímum fram eftir degi. Ég aftur á móti hélt að ég ætti næs frídag í vændum og ætlaði að sofa út en þá greip Hlynur mig á msn klukkan hálf tvö í nótt og þá var málið að við þurftum að borga fyrir Gvatemala miðana okkar í dag til að ná einhverju góðu tilboði.. darn... svo ég þurfti að rífa mig á fætur og fara til Köben. Þar hitti ég Dýrleifu, Lindu og Hlyn á Vide vinstugen. Við áttum ekki að hitta bekkinn alveg strax svo við fengum okkur jólaglögg og funduðum um Gvatemalaferðina. Síðan fórum við á ferðaskrifstofuna að hitta restina af bekknum. Auðvitað kom þá í ljós að ekki var hægt að ganga frá miðunum... því enn er verið að leita að betri tilboðum...Svo ég hafði bara farið til Köben að ástæðulausu... eða hvað...? Ég átti mjög næs dag með Dýrleifu, Lindu og Hlyn en við skelltum okkur bara á kaffihús og fengum okkur Lunch og kaffi.. Bara næs... Kaupmannahöfn er orðin mjög jólaleg og jólamarkaðir út um allt.
Á morgun er langur skóladagur hjá mér en strax eftir skóla þá förum við Dýrleif á einhvern bar til að hitta Íslendingana sem eru að fara á landsleikinn Ísland Danmörk á Parken. Valdi kemur svo þangað. Það verður gaman að prófa að vera fótboltabulla í smá stund en ég hef hins vegar ekki miklar vonir um að við vinnum leikinn.... En ég ætla allavega bara að skemmta mér og skoða mannlífið.... Tek svo fullt af myndum og set inn á morgun eða hinn....
ÁFRAM ÍSLAND
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já 'Afram Ísland. Kveðja af klakanum Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.