17.11.2007 | 17:09
Eggjahræra..
Flensan er að hörfa sem betur fer enda er hundleiðinlegt að hanga heima lasin með hálfa nennu til að gera eitthvað...
Annars er tilveran heldur tíðindalaus þessa dagana. Við fórum í Ikea og keyptum skrifborð fyrir Valda í gær.. Loksins eftir 3ja mánaða Svíþjóðardvöl þá er hann kominn með skrifborð.. Við keyptum einnig borðljós svo nú er hann búinn að koma sér vel fyrir og getur hætt að troða dótinu sínu á skrifborðið MITT..... Við versluðum einnig vel í matinn í Mallinu en þegar heim var komið þá var klukkan orðin of margt til að fara að elda svínafile og tilheyrandi svo Valdi ákvað að gera eggjaköku... eftir að hafa sett 3 egg á pönnuna þá missti hann eggjabakkann á gólfið og braut 9 egg..... Hehe... mér þótti þetta eiginlega frekar fyndið... En Valdi hafði alls ekki húmor fyrir þessu... Og á meðan ég skokkaði út í búð að kaupa fleiri egg þá fattaði Valdi að "taðheilarnir" sem eiga íbúðina hafa ekki tengt yfirfallið á vaskinum... Þannig að eggjaskúringarnar breyttust í eggjaflóð á gólfinu..... Það var ekki geðgóður Valdi sem mætti mér þegar ég kom með nýju eggin....
Við sváfum vel og lengi út í dag og unnum svo í tölvunum fram eftir degi... Við fórum svo í langan og góðan göngutúr í Kirseberggarðinn og svo eitthvað um Kirseberghverfið og svo þaðan niður í bæ... Veðrið er milt og gott eins og alltaf og ljúft að labba um í 6 stiga hita þegar maður les um brjálað veður á Íslandi....
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þarna Þekki ég hann bróðir minn vel. 'Eg hefði sent hann í rúmið. Hér er farið að kólna, 10°c í gær en - gráður í dag. kveðja Steinunn
Steinunn (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 18:39
hæ, já svona getur nú farið fyrir bestu mönnum Valdi minn - en varðandi fleiri húsgögn þá held ég að það væri ráð hjá ykkur að sækja hilluna mína til Hildar áður en hún hendir henni. þetta er hvít IKEA hilla 200x40. tekur ekki mikið pláss en er drjúg hirsla.
kv. guðbjörg
Guðbjörg Guðmundsdóttir, 18.11.2007 kl. 18:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.