15.11.2007 | 21:50
Verkefnavinna og veikindi
Ég (Valdi) mætti klukkan 8 á bókasafnið í morgun til að hitta Zakíu og Rakel vegna verkefnis sem við erum að vinna að. Einhver ælupest var að hrjá guttanna hennar Rakelar þannig að hún kom ekki, Zakíu fann ég hins vegar um 9 leitið þá var hún nýkomin og ég var búinn að finna út úr villu sem við gerðum í gær þannig að allar tölur voru nú réttar. Næsti klukkutíminn eða rúmlega það fór í að að sýna Zakíu hvað búið var að gera, Sólheima dvölin kom sér vel þarna þar sem taka þurfti aðeins á þolinmæðinni við þessa kennslu í tölfræði, en það hafðist þó að lokum, eða það held ég.
Litlu seinna hitti ég svo Andrius út af öðru verkefni sem við áttum að kynna eftir hádegi, við settumst niður og fórum yfir kynninguna og ákváðum hver ætti að segja hvað og svoleiðis. Þá þurfti hann að rjúka að hitta hópinn sinn úr fyrra verkefninu. Við kynntum svo okkar verkefni eftir hádegi ásamt öðrum nemendum sem þurftu að leysa önnur vandamál en við. Svona eru dagarnir núna bara brjáluð keyrsla í skólanum og ekkert nema verkefna vinna.
Guðrún var eitthvað lasin í morgun með beinverki og allan pakkann, Henni leiddist svo mikið í dag að hún tók til í íbúðinni í veikindunum og þvoði þvott en það var hinn sívinsæli þvotta dagur í dag.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 294957
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Halló, þú ert heppin að hafa starfað á Sólheimum um tíma, það hlýtur að hjálpa til þegar átt er við rússana.
Ég er í Uppsala núna hjá Lilju, það er bara fjandi gott. Hún keypti sér far til Íslands um jólin 18 til 28 des.
Þið hafið það sem allra best
Mbk
Vaggi
Vaggi (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 19:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.