14.11.2007 | 23:05
Sænskar bifreiðastöðureglur!
Valdi þurfti að vakna snemma í morgun til að skutla mér á lestarstöðina en ég tók 7.02 lestina til Köben þar sem ég átti að vera mætt 8:30. Það passaði akkúrat en ég var að fara í fyrsta tímann í Tropical botany með Lindu, Dýrleif og Hlyn. Mér líst rosalega vel á kúrsinn og það var æðislegt að vera í tíma með Íslendingum. Við vorum búin um þrjúleytið en það var einhver frestun/niðurfelling á ferðum til Malmö svo ég var föst í klst. í Köben á Nörreport. Gersamlega óþolandi... Ég ákvað svo að vera rosalega dugleg og labba heim þessa 3 km og græjaði mig með vettlinga, Ipod og labbaði rösklega af stað í gegnum lestarstöðina og út... Burrrrrrrrrr..... Ískallt... Svo ég ákvað bara að skoða strætóferðir og fann út að nr. 7 stoppar á lestarstöðinni og hjá Kirsebergkirkjunni sem er hér alveg rétt hjá... Hrein snilld....
Í morgun komumst við að því að við höfðum fengið stöðumælasekt á jeppann meðan við vorum á Íslandi. Við töldum okkur vera í löglegu stæði en vorum þá of nálægt götuhorninu en við vorum 7 metra frá horninu í stað 10 sem á víst að vera... Þetta kostar okkur 7000 ískr í sekt... Við vorum svo glöð að flytja í stöðumælalaust hverfi en ég er búin að fatta að Svíar hala bara inn pening á annan hátt.. Þeir setja allskonar undarlegar reglur og niðurstaðan er að það er bara varla hægt að leggja hér í hverfinu löglega!!!!!!!
Valdi fór um tíu í skólann og hann var í verkefnavinnu í allan dag. Hann er náttúrulega búinn að missa tvo daga úr skólanum þannig að verkefnin hafa hlaðist upp og hóparnir beðið eftir honum... Hann fór svo aftur í kvöld til að vinna verkefni með Rakel.
Ég var eitthvað þreytuleg í kvöld og er hreinlega orðin lasin, beinverkir og aumingjaskapur... Held samt að þetta sé bara svona ferðaþreyta sem kemur svona fram með hitavellu... En ég á ekki að mæta í skólann fyrr en á mánudag svo ég ætla að slaka á og vinna eitthvað fyrir greinasafnið.
Kveðjur frá Malmö
Um bloggið
Guðrún og Valdi
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 294957
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ansk bifreiðastöðudæmi hérna alveg hreint óþolandi- en ég var búin að vara ykkur við þessari reglu einmitt. En við vorum að taka dót úr okkar bíl í gær og skildum hann svo eftir í smá tíma meðan við gengum frá og svoleiðis- og auðvitað var búið að sekta okkur þegar við komum til baka! þetta er nú meira helvítis ruglið... :/
lilja í uppsala (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 14:00
Já einmitt Lilja... Þú varst búin að vara okkur við þessu... En okkur fannst við vera LANGT í burtu frá gatnamótunum... Þeir eru lúmskir þessir Svíar....
Guðrún Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 14:37
Það er alveg öruggt að stöðumælaverðirnir eru á prósentum, svo duglegir eru þeir. Fyrstu vikuna sem við vorum með bíl í Malmö held ég að við höfum eytt nærri 15 þús í bílastæðasektir.
Sigurður Þór Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 09:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.